Undrast að aðrir fari ekki sömu leið og Íslandsbanki 4. nóvember 2009 14:46
Neytendasamtökin segja að það veki athygli í allri umræðunni um skuldir almennings að Íslandsbanki hefur einn fjármálastofnana boðið viðskiptavinum sínum lækkun höfuðstóls lána vegna bankahrunsins. Undrast neytendasamtökin það að aðrir ríkisbankar fari ekki sömu leið. Í umfjöllun um málið á vefsíðu Neytendasamtakana segir að Íslandsbanki hafi auglýst tilboð sín um skuldbreytingar á verðtryggðum húsnæðislánum og erlendum húsnæðislánum í óverðtryggð lán með greiðslujöfnun. Aðrir bankar, sparisjóðir eða lífeyrissjóðir hafa ekki enn boðið heimilum slík úrræði. Hvers vegna skyldi Íslandsbanki velja þessa leið? Er spurt á vefsíðunni. Er hann betur í stakk búinn til þess að bjóða höfuðstólslækkun en aðrir bankar? Getur verið að bankinn hafi séð fram á að hann yrði hvort eð er óhjákvæmilega fyrir áföllum vegna greiðsluvandræða skuldaranna? Getur verið að hann meti það svo að betra sé að gefa eftir af lánunum strax til að forðast útgjöld og töp síðar? Síðan segir að ef til vill líti bankinn á þessa aðgerð sem fjárfestingu í viðskiptavinum sínum. Vandi skuldaranna er mjög víðtækur og lækkun skulda gæti hugsanlega rétt hag margra. Í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að 20% einstaklinga í landinu séu tæknilega gjaldþrota, og 20% til viðbótar ráði varla við að greiða skuldir sínar. Neytendasamtökin undrast að vinnubrögð bankanna skuli ekki vera samræmd. Ekki er hægt að tala um samkeppni á þessum markaði með ríkið sem eiganda stærstu bankanna og auk þess færa viðskiptavinir sig ekki svo létt á milli banka með lánin sín.
Mest lesið Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira