Spá 9% samdrætti samanlagt árin 2009 og 2010 15. nóvember 2009 11:25 „
Hagkerfið mun dragast verulega saman á árunum 2009-2010. Það bætir hinsvegar nokkuð úr skák að vöru- og þjónustuhalli hefur snúist í afgang sem mun taka mesta höggið af hagkerfinu hvað framleiðslu varðar. Greiningardeild spáir því „einungis" 9% samdrætti í landsframleiðslu samanlagt á árunum 2009-2010. Í framhaldi af því mun hinsvegar taka við fjárfestingadrifinn hagvöxtur á árunum 2011-2012." Þetta segir í Markaðspunktum greiningar Nýja Kaupþings þar sem fjallað er um nýja hagspá greiningarinnar fram til ársins 2012. Greining fer fyrst aðeins yfir forsöguna og í Markaðspunktum segir að í góðæri síðustu ára var eftirspurnin í hagkerfinu drifin áfram af auðveldu aðgengi að lánsfé, mikilli bjartsýni og sterku gengi. Í kjölfarið jukust skuldir heimila og fyrirtækja úr rúmlega tvöfaldri landsframleiðsla yfir í fimmfalda landsframleiðslu á tímabilinu 2004-2008. Erfitt aðgengi að lánsfé, veikara gengi, hækkandi skuldir og þyngri greiðslubyrði hafa hinsvegar dregið úr bæði fjárfestingu og útgjöldum heimila og ríkis. Því verða þjóðarútgjöld í sögulegu lágmarki sem hlutfall af landsframleiðslu. Að mati Greiningardeildar mun annar toppur í stóriðjufjárfestingu taka við á árunum 2011-2012. Stærðargráðan verður þó um þriðjungi minni að umfangi en þegar síðustu stóriðjuframkvæmdir stóðu sem hæst á árunum 2005-2007. Þrátt fyrir að orkutengdar framkvæmdir komist á skrið á spátímabilinu þá verður hlutdeild innlendrar eftirspurnar áfram í sögulegu lágmarki sem helgast af lítilli neyslu landsmanna. Eins og vikið hefur verið hér að munu orkugeirinn og orkufrek starfsemi leggja mest til fjárfestingar á spátímabilinu, jafnvel þótt tafir á framkvæmdum séu fyrirsjáanlegar. Greiningardeild gerir ráð fyrir um 300 milljarða kr. fjárfestingu í orkufrekum iðnaði á árunum 2009-2012 (eða sem nemur 28% af heildarfjárfestingu á tímabilinu). Í spánni er gert ráð fyrir a.m.k. eins árs töf á framkvæmdum tengdum álveri í Helguvík og Straumsvík (eða annarri sambærilegri fjárfestingu), sem helgast m.a. af erfiðum fjármögnunarskilyrðum auk þess sem nýir orku- og auðlindaskattar hafa þegar sett strik í reikninginn. Meginþungi framkvæmda mun því koma fram á árunum 2011-2013. Viðræður hafa staðið yfir milli lífeyrissjóða og stjórnvalda um aðkomu þeirra fyrrnefndu að fjármögnun verkefna fyrir allt að 100 milljörðum kr. á næstu árum. Greiningin gerir ráð fyrir að helmingur þeirrar upphæðar verði til fjárfestinga tengdri stóriðju en að hinn helmingurinn verði til fjárfestinga í öðrum atvinnugreinum. Vægi fjárfestingar í landsframleiðslu verður mjög lágt í sögulegu samhengi næstu árin. Nokkurn tíma mun taka fyrir þetta mynstur að snúa við:Takmarkað svigrúm er fyrir hið opinbera að ráðast í frekari fjárfestingar á næstu árum.Fjárfesting atvinnuvega annarra en stóriðju verður að öllum líkindum nokkuð hófleg, a.m.k. fram til ársins 2011.Á móti kemur hins vegar að lífeyrissjóðir munu að líkindum fjárfesta fyrir um 100 milljarða kr. samtals á næstu fjórum árum. Allt útlit er fyrir að offramboð á íbúðum verði á næstu árum og því ólíklegt að ráðist verði í frekari íbúðafjárfestingar á meðan svo er. Greiningin telur að íbúðafjárfesting verði í sögulegu lágmarki út spátímabilið eða í kringum 2% af landsframleiðslu á ári. Óvissan í spánni er meiri í þá átt að fjárfestingarverkefni verði síðar á ferðinni frekar en fyrr. Seinki t.d. fyrirferðarmiklum stóriðjuverkefnum meira en grunnspáin gerir ráð fyrir mun hagvöxtur taka við sér síðar en spáin gerir ráð fyrir. Ræðst það bæði af beinum áhrifum fjárfestingar á hagvöxt og einnig jákvæðum heildaráhrifum fjárfestingar á hagkerfið sem ýta undir hagvöxt (t.d. minnkun atvinnuleysis og vöxtur einkaneyslu). Þeir þættir sem gætu valdið frekari seinkun fjárfestingarverkefna eru einna helst að erfið fjármögnunarskilyrði gætu seinkað því að fjármagn fáist til framkvæmda. Annar þáttur er pólitísk óvissa. Ekki er útséð um áhrif orku-, auðlinda- og umhverfisskatta á fjárfestingu í orkutengdum iðnaði.
Mest lesið Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira