Neytendur svartsýnir í árslok 29. desember 2009 14:06 Mynd/Anton Brink
Íslenskir neytendur eru langt frá því að vera bjartsýnir á horfur í efnahags- og atvinnumálum nú í árslok samkvæmt Væntingavísitölu Gallup sem birt var í hádeginu. Annan mánuðinn í röð lækkar vísitalan sem að mati Greiningar Íslandsbanka bendir til þess að svartsýnin í garð efnahags- og atvinnuástandsins sé að aukast og ráði ríkjum á meðal íslenskra neytenda um þessar mundir. Í Morgunkorni bankans kemur fram að þetta er svipuð þróun og annars staðar. „Þessi niðurstaða kemur eflaust fáum á óvart enda mjög erfitt ár að baki í efnahagslegu tilliti. Væntingavísitalan mælist nú í desembermánuði 34 stig og lækkar um rúm 10 stig milli mánaða," segir í Morgunkorni Íslandsbanka. Þar segir jafnfram að þrátt fyrir þessa miklu lækkun mælist gildi vísitölunnar nú nokkuð hærra en á sama tíma fyrir ári og er jafnframt svipað og það hefur verið að jafnaði frá hruni bankanna. Í desember í fyrra mældist vísitalan 25,3 stig og frá hruni bankanna hefur hún að meðaltali verið um 33 stig. Þá eru allar undirvísitölur á niðurleið. „Allar undirvísitölur Væntingavísitölunnar lækkuðu á milli nóvember og desember sem bendir til þess að væntingar neytenda til núverandi ástands í efnahags og atvinnumálum jafnt og ástandsins eftir sex mánuði séu minni nú en fyrir mánuði síðan."Svipuð þróun og víða erlendis Í Morgunkorninu kemur jafnframt fram að þetta sé svipuð þróun og annars staðar. „Það eru ekki einvörðungu íslenskir neytendur sem hafa verið svartsýnir frá því að hin alþjóðlega fjármálakreppa skall á enda hefur hún vart látið nokkurn neytanda ósnertan." Þannig hafi bandarískan væntingavísitalan náð sínu lægsta gildi í 28 ár í febrúar síðastliðnum og mældist hún þá 25,3 stig. Á undanförnum mánuðum hefur hún verið að sveiflast í kringum 50 stig. Því sé ljóst að þó dregið hafi úr svartsýni á meðal bandarískra neytenda þá eigi þeir enn langt í land að teljast bjartsýnir. Svipaða sögu sé að segja um þróunina á evrusvæðinu. Þar hafi væntingar neytenda náði lágmarki í mars síðastliðnum en hafa síðan þá aukist nokkuð.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira