Eistland er búið að vinna alla landsleiki ársins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. september 2009 15:00 Eistneska kvennalandsliðið í knattspyrnu. Mynd/Heimasíða EJL
Íslenska kvennalandsliðið mætir því eistneska í undankeppni HM á Laugardalsvellinum í kvöld. Það er lítið vitað um eistneska landsliðið sem er í 78. sæti á Styrkleikalista FIFA eða 59 sætum neðar en íslenska liðið. Eistnesku stelpurnar hafa samt verið að gera góða hluti í A-landsleikjum sínum á árinu en liðið er búið að spila fjóra landsleiki og vinna þá alla. Liðið hefur ennfremur leikið sex leiki í röð án þess að tapa en síðasta tap liðsins kom á móti Armeníu 7. nóvember á síðasta ári. Allir þessir leikir hafa reyndar verið á móti þjóðum sem eru ekki ofarlega á styrkleikalista FIFA. Ave Pajo 25 ára framherji hjá toppliði FC Levadia er markahæst hjá Eistum á árinu en hún skoraði fjögur mörk af sex þegar liðið vann sigur á nágrönnum sínum í Litháen og Lettlandi á Eistrasaltsmótinu. Anastassia Morkovkina 28 ára framherji hjá Pärnu, hefur skorað 3 mörk á árinu og hin 18 ára Signy Arna skoraði tvö mörk. Það gekk hinsvegar mun verr hjá liðinu á Heimsleikum stúdenta í Belgrad í júlí þar sem liðið tapaði mörgum leikjum illa þar á meðal 0-10 á móti Bretlandi, 2-8 á móti Póllandi og 0-9 á móti Rússum. Eistar voru ekki með eldri leikmenn á þessu móti og leikirnir teljast ekki vera fullgildir landsleikir hjá FIFA.
Íslenski boltinn Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Fleiri fréttir Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Sjá meira