NBA í nótt: Lakers vann Utah Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. apríl 2009 09:09 Paul Millsap sækir að Pau Gasol í leiknum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Það er ljóst að LA Lakers mætir Utah í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir að þessi lið mættust í nótt á næstsíðasta keppnisdegi deildakeppninnar. Lakers vann Utah, 125-112, í síðasta leik beggja liða á tímabilinu. Með sigri hefði Utah átt möguleika á að koma sér upp í sjötta eða sjöunda sæti Vesturdeildarinnar en Lakers sá til þess að svo fór ekki. Lakers var fyrir löngu búið að tryggja sér efsta sæti deildarinnar og það verða því þessi tvö lið sem mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Denver er öruggt með annað sætið í deildinni en annars ríkir mikil spenna um hin sætin. Houston, Portland og San Antonio eru öll hnífjöfn í 3.-5. sætinu og New Orleans og Dallas eru jöfn í 6.-7. sæti. Öll þessi lið eru að spila í kvöld. Boston og Philadelphia áttust við í svipuðum leik í nótt. Boston vann leikinn, 100-98, sem gerir það að verkum að Philadelphia á litla möguleika á sjötta sætinu í Austurdeildinni. Það verða því þessi tvö lið sem munu af öllum líkindum mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Austrinu. Kevin Garnett og Ray Allen léku ekki með Boston í nótt en Paul Pierce skoraði 31 stig auk þess sem að varamenn liðsins áttu góðan leik. Philadelphia mætir Cleveland í kvöld og þarf á sigri að halda í þeim leik til að eiga möguleika á sjötta sætinu. Philadelphia þarf þar að auki að stóla á að Toronto vinni Chicago í kvöld. Atlanta vann Miami, 81-79. Það var ljóst fyrir leikinn að þessi lið munu mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en bæði lið hvíldu sína lykilmenn í leiknum.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira