Viðskipti innlent

Saga Capital lýkur endurskipulagningu sinni

Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur lokið við endurskipulagningu á efnahagsreikningi bankans. Í því felst að eignasafni Saga Capital er skipt upp þannig að þær eigur sem tilheyra bankastarfsemi verða áfram innan hans en aðrar eigur eru seldar, m.a. eigur sem draga kunna úr rekstrarhæfi og eiginfjárstyrkleika.

Í tilkynningu segir að þetta sé ennfremur gert til að koma til móts við möguleg áhrif óinnleiddra tilskipana Evrópusambandsins hér á landi.

Regluverk og lagaumgjörð fjármálalífsins hafa víða um heim verið endurskoðuð í kjölfar lausafjárkreppunnar. Ísland er engin undantekning og hérlendis hefur verið unnið að breytingum á lögum um fjármálafyrirtæki frá bankahruninu síðasta haust.

Búist er við að þessar breytingar taki meðal annars tillit til ábendinga finnska sérfræðingsins Kaarlo Jännäri og til eiginfjártilskipana ESB sem t.d. lúta að tekjufærðri ívilnun lánakjara af skuldum fjármálafyrirtækja og skatteign þeirra.

Stjórnendur Saga Capital hafa því í nánu samráði við stjórnvöld unnið að endurskipulagningu bankans sem ætlað er að mæta þessum fyrirhuguðu breytingum á lagaumhverfi fjármálafyrirtækja, áður en þær koma til framkvæmda. Þetta er gert samkvæmt markaðri stefnu stjórnar um að vera á undan lagabreytingum í starfsumhverfi bankans og vera á hverjum tíma traust og gegnsæ í starfsemi hans.

Rekstur Saga Capital hefur gengið ágætlega í ár og einkennist helst af vaxandi þóknanatekjum og lægri rekstrarkostnaði, en einnig af vaxandi afskriftum sem endurspegla almennt ástand í efnahagslífinu.

Í kjölfarið er efnahagsreikningur bankans mun minni, áhætta eigna hans er minnkuð verulega og rekstrarhæfi mjög gott. Þá er eiginfjárhlutfall hátt og lausafjárstaða góð.

Endurskipulagningin er háð endanlegu samþykki hluthafa Saga Capital og Fjármálaeftirlitsins, að því er segir í tilkynningunni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×