Samkeppniseftirlitið fjallar um banka og endurskipulagningu 8. desember 2009 14:12
Samkeppniseftirlitið telur að það sé neytendum og atvinnulífinu til hagsbóta að bankar afskrifi eða minnki skuldir rekstrarhæfra fyrirtækja sem eiga í greiðsluerfiðleikum. Bankar verða hins vegar að gera skýra arðsemiskröfu til endurskipulagðra fyrirtækja og gæta að samkeppnissjónarmiðum. Í tilkynningu segir að þetta komi m.a. fram í umræðuskjali um banka og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag. Leitar eftirlitið umsagnar hjá hagsmunaaðilum og almenningi um þá stefnumörkun sem kynnt er í skjalinu. Hægt er að nálgast skjalið á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins. Í umræðuskjalinu er fjallað um skuldavanda íslenskra fyrirtækja og samkeppnisleg álitaefni tengd honum. Er viðfangsefni þetta afar mikilvægt og getur haft veruleg áhrif á þróun og uppbyggingu íslensks atvinnulífs. Samkeppniseftirlitið setur fram, í 17 tölusettum liðum, kjarnasjónarmið sem það telur að hafa eigi að leiðarljósi við endurskipulagningu atvinnufyrirtækja. Dreginn er lærdómur af reynslu annarra ríkja af áþekkum álitaefnum. Jafnframt er gefið yfirlit yfir það hvernig framangreind þátttaka bankanna á samkeppnismörkuðum horfir við samkeppnislögunum, hvernig ríkisstyrkjareglur tengjast viðfangsefninu og hvernig brugðist hefur verið við málum að þessu tagi hingað til. Á meðal þeirra 17 kjarnasjónarmiða sem fram koma í skjalinu má nefna eftirfarandi: Einungis á að koma þeim fyrirtækjum til aðstoðar, sem eiga sér eðlilegar rekstrarlegar forsendur en forðast ber að endurreisa eða halda gangandi óhagkvæmum fyrirtækjum. Það er neytendum og atvinnulífinu til hagsbóta að bankar afskrifi skuldir eða á annan hátt dragi úr skuldabyrði rekstrarhæfra fyrirtækja. Beiting samkeppnislaga á ekki að vinna gegn þessu. Bankar verða að gera skýra arðsemiskröfu til endurskipulagðra fyrirtækja og gæta verður fyllsta aðhalds um arðsemi.Draga þarf úr hættunni á því að of mikil skuldabyrði fyrirtækja sé sótt í vasa neytenda í formi hærra verðs.Bankar eiga að selja endurskipulögð fyrirtæki við svo fljótt sem auðið er í gagnsæju ferli, eftir því sem kostur er. Skráning í kauphöll er vænlegur kostur.Samkeppnislögin veita næga vernd að því undanskildu að í þeim skortir heimildir til að skipta upp fyrirtækjum.Umræðuskjalinu er m.a. ætlað að draga fram hversu mikilvægt það er að hagsmunir neytenda og samfélagsins af virkri samkeppni séu hafðir að leiðarljósi umfram sérhagsmuni tiltekinna fyrirtækja. Í opinberri umfjöllun um endurskipulagningu fyrirtækja hefur nær einhliða verið fjallað um stöðu einstakra fyrirtækja sem nú sjá fram á samkeppni við fjárhagslega endurskipulögð fyrirtæki.Sjónarmið þeirra skipta vissulega máli þegar endurskipulagning fer fram, en mega ekki vera ráðandi. Einkum þarf að líta til hagsmuna samfélagsins og neytenda af virkri samkeppni.
Mest lesið Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Lögreglustjórinn: Segir pabbabrandara, elskar krimmasögur og segir húmor vanmetinn Atvinnulíf Arnar og Aron Elí til Reita Viðskipti innlent Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Viðskipti innlent Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Sjá meira