Lánin notuð til að kom í veg fyrir greiðsluþrot 20. desember 2009 18:39
Það hefur alltaf legið fyrir að lánin frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndunum fari í að standa undir öðrum erlendum lánum, segir Gunnar Tómasson, hagfræðingur. Hann segir að lánin fari ekki í að byggja upp gjaldeyrisvarasjóðinn - heldur í að koma í veg fyrir greiðsluþrot. Ár er liðið frá því samið var við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um aðkomu að endurreisn Íslands. Ráðamenn hafa ítrekað talað um mikilvægi þess að fá lán frá sjóðnum og öðrum löndum til að stækka gjaldeyrisforðann. Það myndi auka trúverðugleikann og styðja við gengi krónunnar. Gunnar Tómasson, hagfræðingur og fyrrverandi starfsmaður AGS, segir að alltaf hafi hins vegar legið fyrir að lánin færu í að greiða afborganir af erlendum skuldum. Þegar skýrsla AGS sé skoðuð komi enda í ljós að forðinn breytist nánast ekkert á næstu tveimur árum. „Þetta skiptir meginmáli í allri umræðunni um hver staða okkar er gagnvart erlendum skuldbindingum. Við erum ekki að byggja upp gjaldeyrisvarasjóðinn með þessum lánum. Við erum að forðast greiðsluþrot," segir Gunnar. Grundvallarforsendur efnahagsáætlunarinnar séu í raun brostnar. Verðbólga hærri í lok árs en áætlunin geri ráð fyrir, og erlendar skuldir meiri en fyrst var áætlað. „Ef ég á að segja alveg hreint út þá tel ég að AGS geri sér fulla grein fyrir því að aðgerðaráætlunin hafi ekki gengið upp og að stór vandi sé framundan. En af pólitískum ástæðum kjósa þeir og íslensk stjórnvöld að láta sem svo sé ekki," segir Gunnar. Ef koma eigi efnahagslífinu af stað sé mikilvægt að horfa blákalt á staðreyndirnar. Fulltrúar sjóðsins reyni hins vegar að verja áætlunina, á forsendum sem standist ekki, í staðinn fyrir að taka hana til róttækrar endurskoðunar.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira