Höfuðstóll erlendra íbúðalána lækkar allt að 30% hjá Arion 4. desember 2009 15:39
Höfuðstóll erlendra íbúðalána getur lækkað um allt að 30 prósent samkvæmt nýju skuldaúrræðum Arion bankans. Ekki verður krafist uppboða vegna vangoldinna húsnæðislána til loka árins 2010, óháð því hvort um er að ræða innlend eða erlend lán. Í tilkynningu segir að starfsfólk Arion banka hefur að undanförnu unnið og útfært nýjar lausnir fyrir viðskiptavini bankans sem ganga heldur lengra en hafa verið kynntar hingað til. Arion banki býður viðskipavinum upp á nokkrar leiðir, sem taka aukið mið af misjafnri skuldastöðu þeirra og því hvort um er að ræða erlend eða innlend húsnæðislán. Arion banki býður viðskiptavinum sínum, sem eru með erlend húsnæðislán, tvo valkosti: Að lækka höfuðstól lánsins um 30 prósent og breyta því í fasteignalán í íslenskum krónum til allt að 40 ára. Hægt er að fá lánið með 6,0% óverðtryggðum vöxtum til næstu þriggja ára. Að þeim tíma liðnum færist vaxtaprósentan yfir í bestu fáanlegu íbúðalánavexti sem bjóðast hjá bankanum.Eftir þessa leiðréttingu lánsins verður staða þess sú sama og hún var þann 29. september 2008. Það er mat Arion banka að þessi leið henti vel þar sem veðhlutfallið er undir 155% af verðmæti húseignarinnar. Viðskiptavinum með erlend húsæðislán stendur líka til boða að Arion banki lækki höfuðstól lánsins í 110% af markaðsvirði eignarinnar. Láninu er þá breytt í íslenskt fasteignalán, óverðtryggt eða verðtryggt. Lánið ber breytilega markaðsvexti verðtryggðra lána, sem eru nú 5,4%, eða breytilega markaðsvexti óverðtryggðra lána, sem eru nú 9,75 prósent. Að auki býður bankinn sértæka skuldaaðlögun sé greiðslugeta minni en sem nemur hinu 110 prósenta veðhlutfalli. Virði húseignarinnar miðast við núverandi markaðsvirði, sem þó getur aldrei verið lægra en fasteignamat frá 1. desember 2009. Það er mat Arion banka henti vel þar sem veðhlutfallið er yfir 155% af verðmæti eignarinnar. Einungis er unnt að velja aðra af ofangreindum leiðum. Í báðum tilvikunum er um ný lán að ræða, sem bera þinglýsingarkostnað fyrir lántakendur. Báðar leiðirnar gera hins vegar ráð fyrir allt að 30 til 40 prósenta lækkunum á höfuðstól núverandi lána. Þeir sem eru með innlend íbúðalán hjá Arion banka gefst kostur á lækkun höfuðstóls í 110% af markaðsvirði húseignarinnar. Vaxtakjör lánsins haldast óbreytt og þar sem áfram verður um sama lán að ræða er ekki um neinn þinglýsingarkostnað að ræða.Auk lækkunar á höfuðstól lána býður bankinn viðskiptavinum með innlend íbúðalán upp á sértæka skuldaaðlögun. Þá miðast virði eigna við núverandi markaðsvirði, sem þóc getur aldrei verið lægra en fasteignamat frá 1. desember 2009. Fjórði valkosturinn sem Arion banki býður viðskiptavinum sínum er að greiða eingöngu vexti af fasteignalánum sínum í allt að eitt ár. Mánaðarlegar greiðslur geta þá lækkað um 10 til 25 prósent, allt eftir lengd lánstímans. Þær leiðir sem kynntar eru hér að ofan standa viðskiptavinum Arion banka boða frá mánudeginum 7. desember til 1. júlí 2010. Hægt er að sækja um lánabreytingar óháð því hvort viðskiptavinirnir þáðu eða afþökkuðu greiðslujöfnun á grundvelli laga ríkisstjórnarinnar vegna greiðslubyrði húsnæðislána fyrir heimili, einstaklinga og fyrirtæki.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira