Garðabær reiknar með afgangi af rekstrinum á næsta ári 4. desember 2009 11:03
Bæjarstjórn Garðabæjar gerir ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu að fjárhæð 67 milljónir kr. í fjárhagsáætlun sinni fyrir næsta ár. Veltufé frá rekstri er 13,6% og er það til marks um trausta fjárhagsstöðu Garðabæjar, að því er segir í tilkynningu um málið.Fram kemur að í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2010 er tekið mið af þeim áherslum sem fram komu á nýlegum íbúafundi um að standa vörð um skóla- og æskulýðsstarf. Sérstök fjárveiting er veitt til að styrkja barna- og unglingastarf hjá íþrótta- og æskulýðsfélögum í bænum og einnig er veitt sérstök fjárveiting til að styðja við sveigjanlegt skólastarf.Áætlunin gerir ráð fyrir að fyrirséðum samdrætti í tekjum verði mætt með sparnaði og hagræðingu í rekstri stofnana, að grunnþjónusta verði ekki skert og að öll störf verði varin. Álagningarhlutfall útsvars verður áfram 12,46% sem er með því lægsta sem gerist. Lagt er til grundvallar að tekjur lækki um 7-8% og að útsvarstekjur bæjarins verði 3.589 milljónir kr.Almennt er gert ráð fyrir að haldið verði áfram með þær aðhaldsaðgerðir sem gripið var til á árinu 2009 en að ekki verði þörf á sérstökum aðgerðum þar til viðbótar. Meðal þeirra aðgerða var lækkun launa stjórnenda sem verða óbreytt út árið 2010.Skuldastaða Garðabæjar er góð og bærinn er með nánast allar skuldir í ísl. kr. Langtímaskuldir nema um 2.100 milljónum kr.Gert er ráð fyrir að álagningarhlutfall fasteignaskatts verði óbreytt og að fasteignagjöld hækki ekki á árinu og að gjaldskrár hækki ekki og áfram verði veittur 6 tíma afsláttur fyrir 5 ára börn í leikskólaAð gert verði ráð fyrir auknum fjárveitingum vegna lögbundinna skuldbindinga bæjarins um að tryggja félagslegt öryggi íbúa og stuðla að velferð íbúa og að framkvæmt verði fyrir allt að 453 milljónir kr. án lántöku. Skuldir verða greiddar niður um 340 milljónir kr.Undirbúningur að fjárhagsáætlun að þessu sinni var óhefðbundinn að því leyti að í fyrsta skipti var leitað til íbúa um ábendingar. Íbúaþing var haldið með þátttöku tæplega 100 Garðbæinga sem lögðu fram ýmsar gagnlegar ábendingar og áherslur. Sömuleiðis gafst íbúum kostur á að koma með hugleiðingar á rafrænu formi á heimasíðu Garðabæjar.
Mest lesið Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Arnar og Aron Elí til Reita Viðskipti innlent Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Opnar sjálfur stað þar sem rekstur Quang Le gekk best Viðskipti innlent Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Viðskipti innlent Lögreglustjórinn: Segir pabbabrandara, elskar krimmasögur og segir húmor vanmetinn Atvinnulíf U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Sjá meira