Sérstakur saksóknari aflaði gagna í húsleit hjá Byr 24. nóvember 2009 14:55 Mynd/Pjetur
Menn á vegum Ólafs Haukssonar sérstaks saksóknara öfluðu gagna í húsleit í Byr í dag í framhaldi af rannsókn þeirri sem Fjármálaeftirlitið vísaði til sérstaks saksóknara varðandi eignarhaldsfélagið Exeter Holdings. Trausti Haraldsson, upplýsingafulltrúi Byr, segir að eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum að þá hefur Fjármálaeftirlitið vísað máli vegna láns sem Byr sparisjóður veitti eignarhaldsfélaginu Exeter Holding í október og desember 2008 til sérstaks saksóknara. Staða mála er sú að rannsókn málsins er í gangi og liður í henni er að starfsmenn sérstaks saksóknara komu til Byrs sparisjóðs til að fá nánari upplýsingar um málið og hafa starfsmenn Byrs verið í fullu samstarfi við þá, að sögn Trausta. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, vildi ekki staðfesta þetta í samtali við fréttastofu en sagði embættið vera í ákveðnum aðgerðum. Von væri á yfirlýsingu síðar í dag. Upphafleg rannsókn Fjármálaeftirlitið beindist að viðskiptum félags í eigu Ragnars Z. Guðjónssonar forstjóri Byrs og nokkurra annarra stjórnenda sjóðsins með stofnfjárhluti í Byr. Félagið var Húnahorn. MP Banki gerði veðkall í hlut Húnahorns í Byr. Fljótlega eftir það rann hluturinn inn í félagið Exeter Holdings, félags í eigu Ágústs Sindra Karlssonar, fyrrverandi stjórnarmanns MP. Rannsókn FME virðist beinast að því að grunur leikur á að Húnahorn hafi selt hlut sinn beint til Exeter Holdings sem hefur fjármagnað 1,8 prósent hlut sinn í Byr með yfirdráttarláni frá Byr. „Við misstum hlutinn en framseldum hann ekki til Exeter Holdings. Við eigum skjöl sem sýna að hluturinn fór frá okkur til MP Banka. Hvað gerðist síðan í framhaldinu verða aðrir að svara til um," sagði Ragnar í samtali við visir.is í mars s.l. Stjórn Byrs lánaði Exeter Holdings 1,1 milljarð á yfirdráttarláni fyrir kaupum á hlutum í Byr. Samkvæmt heimildum Vísis eru þar inni hlutir sem MP Banki hefur tekið veðkall í á undanförnum mánuðum. Meðal þeirra sem misst hafa bréf eru stjórnarmenn Byrs, sömu menn og tóku ákvörðun um að fjármagna hlutabréfaeign Exeter Holdings í Byr.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira