Greining: Ársverðbólgan lækkar í 7,7% í desember 15. desember 2009 11:02
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,6% í desember. Ef spáin gengur eftir lækkar verðbólgan úr 8,6% í 7,7%. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að þrátt fyrir að gengi krónu hafi verið nokkuð stöðugt undanfarna mánuði eru enn að koma fram í verðlagi áhrif gengishrunsins frá miðju ári 2008, sér í lagi í þeim vöruliðum sem búa við tiltölulega hægan veltuhraða eða árstíðabundið vöruframboð. Þannig gerir greiningin ráð fyrir að liðir á borð við húsgögn, heimilisbúnað, fatnað og rafeindatæki til heimilisnota hækki um eitt til tvö prósentustig á milli mánaða, en töluverð verðhækkun hefur verið að koma fram á slíkum innfluttum vörum á síðustu mánuðum. Margt hefur orðið til að tefja áhrif falls krónu undanfarin misseri á verðlag varanlegra og hálfvaranlegra neysluvara. Snarminnkandi eftirspurn eftir slíkum vörum hefur hægt mikið á veltuhraða þeirra, auk þess sem gera má ráð fyrir að söluaðilar hafi í lengstu lög vænst þess að krónan styrktist að nýju og beðið með að hleypa hærra innkaupsverði að fullu yfir í útsöluverð. „Teljum við að vegna ofangreindra þátta sé enn eftir nokkur verðhækkun á ýmsum vöruflokkum vegna gengisfalls krónu," segir í Morgunkorninu. Fram kemur að á fyrsta fjórðungi næsta árs má búast við töluverðri hækkun VNV. Þar vegur þungt hækkun óbeinna skatta í janúar og mars, sem greingin telur að muni í heild hækka vísitöluna um 1,4% á fjórðungnum. „Við bætist svo að mati okkar frekari hækkun á þeim liðum sem fjallað er um hér að ofan, sem og gjaldskrárhækkanir sem jafnan má eiga von á um áramót. Við gerum ráð fyrir að útsöluáhrif verði svipuð á fjórðungnum og verið hefur undanfarin ár," segir í Morgunkorninu. „Þannig spáum við að föt og skór muni lækka um 8% að jafnaði í janúar en hækka að nýju um ríflega 7% í febrúar og svo enn frekar í mars. Alls teljum við að VNV muni hækka um 2,8% fram til marsloka miðað við síðustu mælingu í nóvember. Verðbólgan mun því líklega hækka á þessu tímabili og ná hámarki í 9,5% í mars á næsta ári ef spá okkar gengur eftir."
Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Sjá meira