Áætla að meira en helmingur af virði eigna endurheimtist 25. nóvember 2009 16:41
Slitanefnd Frjáls fjárfestingarbankans áætlar að 50 til 65% endurheimtist af virði eigna bankans sem var tekinn til slita samkvæmt ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur í júní þegar eigið fé hans var uppurið. Helstu þættir sem hafa áhrif á endurheimturnar eru þróun á fasteignamarkaði, gengi gjaldmiðla, hagvöxtur og atvinnu- og launaþróun, að fram kemur í tilkynningu. Slitastjórn telur farsælast að reka bankann áfram til að hámarka virði eigna hans, meðal annars með útleigu á eignum. Slitastjórn gerði nýverið grein fyrir stöðu bankans á kröfuhafafundi og fór yfir kröfuskrána auk þess sem kröfuhöfum var gefinn kostur á að gera athugasemdir. Engar bindandi ákvarðanir voru teknar á fundinum. „Lýstar kröfur í búið námu tæpum 100 milljörðum króna, 37 kröfur voru samþykktar í heild eða breyttar að fjárhæð rúmir 93 milljarðar króna samkvæmt kröfuskránni, 110 kröfum var hafnað og 26 hafnað að svo stöddu. Samþykktar veðkröfur nema samtals 1.930.233 kr. Aðrar kröfur hafa stöðu almennra krafna. Frestur til að skila inn kröfulýsingum rann út 22. október 2009. Engar forgangskröfur voru samþykktar,“ segir í tilkynningu slitastjórnarinnar. Eignir Frjálsa fjárfestingarbankans samanstanda öðru fremur af lánasöfnum til einstaklinga og fyrirtækja sem tryggð eru með veðum í fasteignum. Aðrar eignir eru fasteignir sem leigðar eru út og auk þess nokkrar lóðir og fasteignir á byggingarstigi.
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Fleiri fréttir Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Sjá meira