Skattabyrðin jókst mest á Íslandi af OECD ríkjum 1995-2007 25. nóvember 2009 12:15
Á síðustu árum hefur hlutfall skatta af landsframleiðslu á Íslandi verið töluvert yfir meðaltalinu í öðrum ríkjum OECD enda jókst skattbyrðin meira hér á landi en í nokkru öðru ríki á tímabilinu 1995 til 2007, eða úr 31,2% í 40,9%.Þetta kemur fram í Moergunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þetta hafi augljóslega haft þau áhrif að staða Íslendinga í þessum samanburði breyttist verulega á þessum tíma. Af 30 ríkjum OECD var Ísland í 21. sæti árið 1995 yfir mestu skattbyrðina en var komið upp í 9. sæti árið 2007.Miðað við tölur fyrir árið 2008 er þó ljóst að efnahagskreppan hefur dregið mun meira úr skatttekjum hins opinbera á Íslandi en í nokkru öðru ríki OECD.Skattbyrði, reiknað sem hlutfall skatttekna hins opinbera af vergri landsframleiðslu, lækkaði mest á Íslandi af ríkjum OECD á milli áranna 2007 og 2008, eða úr tæplega 41% í 36%. Þóun þessi er ekki einsdæmi þar sem þetta skatthlutfall lækkaði í 17 af 26 aðildarríkjum OECD sem skilað hafa inn gögnum fyrir árið 2008.Lækkunin er næst mest á Spáni (úr 37,2% í 33%) og þar á eftir á Írlandi (úr 30,8% í 28,3%). Líkt og hér á landi endurspeglar þessar lækkanir hrun ýmissa mikilvæga skattstofna, svo sem tekjuskatta, eignarskatta og skatta af vörum og þjónustu.Í níu ríkjum af 26 hækkar skatthlutfallið á milli áranna 2007 og 2008. Hækkunin er mest í Mexíkó (úr 18% í 21,1%) og næst mest í Lúxemborg (úr 36,5% í 38,3%). Í Mexíkó endurspeglar hækkunin auknar tekjur af olíu en í Lúxemborg aukna innkomu af tekjusköttum og sköttum af vöru og þjónustu. Þetta kom fram í skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um skattamál sem birt var í gær.Að meðaltali var hlutfall skatttekna af vergri landsframleiðslu 35,8% í ríkjum OECD árið 2007 og áætlar stofnunin að hlutfallið fari niður í 35,2% árið 2008. Auk þess bendir flest til þess að hlutfallið komi til með að lækka enn frekar á fyrirliggjandi ári en algengt er að skatttekjur minnki hlutfallslega meira en sem nemur lækkun vergar landsframleiðslu vegna þeirrar innbyggðu sveiflujöfnunnar sem er í skattkerfum flestra landa. Jafnframt hafa mörg aðildarríkjanna lækkað skatta til þess að mæta minnkandi eftirspurn í kjölfar fjármálakreppunnar.Eins og kunnugt hefur þetta verið með öðrum hætti hér á landi þar sem skattar hafa verið hækkaðir og koma til með að hækka enn frekar um næstu áramót m.v. þær skattbreytingar sem ríkisstjórnin kynnti nýverið. Þess má geta að þrátt fyrir umfangsmiklar skattahækkanir hér á landi stefna skatttekjur ríkissjóðs í hlutfalli við verga landsframleiðslu að verða með því lægsta sem það hefur verið undanfarin ár enda hafa ýmsir skattstofnar hrunið sem gefið hafa af sér drjúgar tekjur á undanförnum árum.Sem hlutfall af landsframleiðslu var skattbyrðin mest í Danmörku (48,3%) á árinu 2008 og þar á eftir í Svíþjóð (47,1%). Finnland (42,8%) og Noregur (42,1%) eru ekki langt undan og verma 7. og 8. sæti yfir þau ríki með mestu skattbyrðina.Miðað við þá áætlun OECD að hlutfall skatttekna verði um 35,2% að meðaltali í ríkjum OECD má sjá hversu hátt þetta hlutfall er á Norðurlöndunum. Ísland (36%) er þó einungis rétt yfir meðaltali þetta árið og skipar 14. sæti á þessum lista
Mest lesið Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Viðskipti erlent Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Viðskipti innlent Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Sjá meira