Verulega dregur úr aukningu peningamagns í umferð 24. nóvember 2009 12:34 Myndin fylgir með umfjöllun greiningar Íslandsbanka.
Mjög hefur hægt á aukningu peningamagns í umferð undanfarna mánuði, enda má segja að framboð lausafjár í fjármálakerfinu hafi oftast verið meira en eftirspurn það sem af er ári. Samkvæmt nýlega birtum tölum Seðlabankans var grunnfé í lok septembermánaðar alls tæpir 161 milljarðar kr. Þar af voru seðlar og mynt í umferð röskir 25 milljarðar kr. en innstæður innlánsstofnana 136 milljarðar kr. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að peningamagn samkvæmt þröngri skilgreiningu , M1, var tæpir 600 milljarðar kr. í septemberlok, en til þess teljast veltiinnlán að viðbættum seðlum og mynt í umferð. Samkvæmt breiðustu skilgreiningu Seðlabankans, M3, sem inniheldur bundin innlán að viðbættum veltiinnlánum og almennu sparifé, var heildarmagn peninga í umferð hins vegar ríflega 1.735 milljarðar kr. Innlán á óbundnum reikningum jukust verulega í kring um bankahrunið í fyrrahaust, sem ætti ekki að koma á óvart í ljósi yfirlýstrar ríkisábyrgðar á innstæðum í fjármálafyrirtækjum. Þannig var fé á óbundnum sparifjárreikningum, veltiinnlán og seðlar og mynt í umferð samanlagt tæpir 717 milljarðar kr. í lok september í fyrra. Í októberlok hafði þessi staða hins vegar hækkað í ríflega 1.023 milljarða kr. og hefur staðan haldist nærri 1.000 milljarða kr. allar götur síðan. Slíka þróun er hins vegar ekki hægt að greina í bundnum innlánum á heildina litið, en samsetning þeirra breyttist í kjölfar hrunsins á þá lund að verulega dró úr innlánum á peningamarkaðsreikningum á meðan verðtryggð innlán jukust umtalsvert. Frá áramótum til septemberloka jókst peningamagn í umferð aðeins um 5%, sé miðað við þróun M1 en um tæp 4% ef M3 er lagt til grundvallar. Hins vegar jókst grunnfé um tæp 40% á sama tímabili. Ástæða þessa er væntanlega sú að sakir rúmrar lausafjárstöðu og lítillar lánsfjáreftirspurnar ávaxta bankarnir lausafé sitt í töluverðum mæli í Seðlabankanum. Það fé kemur fram í þróun grunnfjárins, en þar sem því er ekki veitt til útlána verða ekki af því margföldunaráhrif í fjármálakerfinu og eykst því ekki peningamagn eins og það er mælt með M1-M3 af þess völdum. Peningamargfaldarar í íslensku fjármálakerfi hafa því lækkað undanfarið og hafa þeir vart verið lægri undanfarin ár. Alla jafna leiðir hröð aukning peningamagns í umferð til verðbólguþrýstings, þar sem fleiri krónur verða þá til skiptanna til kaupa á tilteknu magni af vörum og þjónustu, en það er þó tæpast mikið áhyggjuefni þessa dagana ef marka má þróun peningamagns hérlendis það sem af er ári, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Sjá meira