Saga Capital lýkur endurskipulagningu sinni 24. nóvember 2009 11:54
Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur lokið við endurskipulagningu á efnahagsreikningi bankans. Í því felst að eignasafni Saga Capital er skipt upp þannig að þær eigur sem tilheyra bankastarfsemi verða áfram innan hans en aðrar eigur eru seldar, m.a. eigur sem draga kunna úr rekstrarhæfi og eiginfjárstyrkleika. Í tilkynningu segir að þetta sé ennfremur gert til að koma til móts við möguleg áhrif óinnleiddra tilskipana Evrópusambandsins hér á landi. Regluverk og lagaumgjörð fjármálalífsins hafa víða um heim verið endurskoðuð í kjölfar lausafjárkreppunnar. Ísland er engin undantekning og hérlendis hefur verið unnið að breytingum á lögum um fjármálafyrirtæki frá bankahruninu síðasta haust. Búist er við að þessar breytingar taki meðal annars tillit til ábendinga finnska sérfræðingsins Kaarlo Jännäri og til eiginfjártilskipana ESB sem t.d. lúta að tekjufærðri ívilnun lánakjara af skuldum fjármálafyrirtækja og skatteign þeirra. Stjórnendur Saga Capital hafa því í nánu samráði við stjórnvöld unnið að endurskipulagningu bankans sem ætlað er að mæta þessum fyrirhuguðu breytingum á lagaumhverfi fjármálafyrirtækja, áður en þær koma til framkvæmda. Þetta er gert samkvæmt markaðri stefnu stjórnar um að vera á undan lagabreytingum í starfsumhverfi bankans og vera á hverjum tíma traust og gegnsæ í starfsemi hans. Rekstur Saga Capital hefur gengið ágætlega í ár og einkennist helst af vaxandi þóknanatekjum og lægri rekstrarkostnaði, en einnig af vaxandi afskriftum sem endurspegla almennt ástand í efnahagslífinu. Í kjölfarið er efnahagsreikningur bankans mun minni, áhætta eigna hans er minnkuð verulega og rekstrarhæfi mjög gott. Þá er eiginfjárhlutfall hátt og lausafjárstaða góð. Endurskipulagningin er háð endanlegu samþykki hluthafa Saga Capital og Fjármálaeftirlitsins, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira