Seðlabankinn: Kaupmáttur rýrnar um 15% á næsta ári 5. nóvember 2009 11:53
Seðlabankinn hefur endurskoðað spá sína hvað þróun kaupmáttar varðar og reiknar nú með að hún nemi 15% á næsta ári. Þetta er tvöfalt meiri rýrnun en bankinn hafði áður spáð en í ágúst hljóðaði spáin upp á 7,4% rýrnun á næsta ári. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Seðlabankanum sem var að ljúka til að kynna vaxtaákvörðun peningastefnunefndar í morgun og ræða horfurnar framundan. Þar kom fram að spáin fyrir kaupmáttarrýrnunin í ár verði hin sama og áður var spáð eða um 19%. Ástæður þessa eru m.a. þær að beinir skattar munu hækka meir á næsta ári en Seðlabankinn gerði ráð fyrir áður. Fjallað er um þessar skattahækkanir í ritinu Peningamál sem komið er út. Tekjuáætlun fjárlagafrumvarps stjórnvalda gerir ráð fyrir því að skatttekjur vaxi um 61 milljarða kr. frá áætluðum skatttekjum ársins 2009 þar sem tæpir 38 milljarðar kr. komi frá beinum sköttum, 8 milljarða kr. frá óbeinum sköttum og 16 milljarðar kr. frá nýjum orku-, umhverfis- og auðlindasköttum. Þetta er aukning nafntekna, en beinar aðgerðir á tekjuhlið nema 40 milljörðum kr. Í ritinu Peningamál segir að skatttekjur sem hlutfall af landsframleiðslu hækka við þessar aðgerðir um 3,3 prósentur og verða 27,1%. Á sama tíma lækka útgjöld ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu um 3,3 prósentur og verða 39,8%. Afkomubatinn milli ára yrði því 5,3% af landsframleiðslu. Beinar aðgerðir til að draga úr útgjöldum nema tæpum 43 ma.kr. samkvæmt frumvarpinu og skiptast jafnt niður á þrjá helstu útgjaldaflokkana, eins og gert var ráð fyrir í síðustu spá. Núverandi spá gerir hins vegar ekki ráð fyrir að þetta gangi að öllu leyti eftir og byggist sú forsenda á reynslu undanfarinna ára. Jafnframt er spáin lækkuð um sem nemur minni samdrætti í samneyslu sveitarfélaga. Fjölmörg sveitarfélög hafa brugðist hratt við breyttum aðstæðum og skorið niður útgjöld. Staða þeirra er þó mjög misjöfn og erfitt að fá nægilega góða heildarmynd af henni.
Mest lesið Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Hættu í megrun: „Það varð eiginlega allt vitlaust“ Atvinnulíf Segir Seðlabankann vera að falla í sömu gryfju og fyrir hrun Viðskipti innlent Stefán Atli gengur til liðs við Öryggismiðstöðina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Sjá meira