Gróf mismunun á milli tekjuhópa 20. desember 2009 14:37 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Mynd/GVA
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ segir að það sé mikill og alvarlegur misskilningur hjá þingmönnum stjórnarmeirihlutans að stilla þrepaskiptum skatti og verðtryggingu persónuafsláttar upp sem valkosti sem útiloki hvorn annan. „Sá valkostur sem við stóðum frammi var að til að ná neðra skattþrepinu stóð til að fresta verðtryggingunni um ein áramót - sem þýðir minni hækkun persónuafsláttar núna gegn lægra skatthlutfalli - en ekki um hver áramót hér eftir," segir Gylfi í tilkynningu. Afar mikilvægt er að eftir að lægra þrepið hefur verið tekið upp fylgi persónuafsláttur verðlagi því að öðrum kosti mun skattbyrði lágtekjufólks halda áfram að hækka, að mati Gylfa. Gylfi segir að það eigi lítt skylt við áform um að verja þá tekjulægstu að láta persónuafslátt og þar með skattleysismörkin vera óbreyttan að nafnverði um ómunatíð en tengja síðan milli- og efri tekjumörkin, sem séu 200 og 450 þúsund krónur, við launavísitölu. „Þetta er að mínu mati gróf mismunun á milli tekjuhópa sem mun leiða til þess að skattbyrði lágtekjufólks fari sífellt fara hækkandi (eins og reynslan var milli 1990-2006!), á meðan skattbyrði milli- og hátekjuhópa er varin vegna tengingar markanna við launavísitölu. Það sem átti að vera aðgerð til að skapa meiri sátt milli tekjuhópa er í rauninni rofinn með þessu," segir í tilkynningu Gylfa. Hann skorar á þingmenn meirihlutans að koma í veg fyrir þetta. Almennt launafólk treysti þingmönnum til að standa vörð um þá tekjulægstu og bregðist þeir því trausti muni það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir trúverðugleika þeirra til langs tíma. „Sérstaklega þegar það er haft í huga að það var í tíð vinstri stjórnar sem verðtrygging persónuafsláttar var afnumin árið 1989."
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira