Íbúðaverð hefur ekki náð botninum 30. desember 2009 13:09 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Greining Íslandsbanka segir að íbúðaverð hafi ekki enn náði boði. Það sem af árinu, það er frá desember í fyrra til nóvember síðastliðins, hefur verð á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 10% að nafnvirði miðað við vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu, að fram kemur í Morgunkorni bankans. „Enn meiri lækkun hefur verið að raunvirði, eða sem nemur um 18,6%. Þrátt fyrir að vísitala íbúðaverðs sé ekki komin fyrir desembermánuð bendir þetta til að lækkunin að nafnvirði sé nokkuð minni en við höfðum reiknað með í spá okkar um verðþróun á íbúðamarkaði sem birt var í desember í fyrra. Þannig höfðum við gert ráð fyrir að íbúðaverð kæmi til með að lækka um 15% að nafnvirði og um 18% að raunvirði á árinu," segir í Morgunkorninu. Þó sé ljóst að umhverfið á íbúðamarkaði sé enn erfitt enda sé hagkerfið ennþá í heljargreipum kreppunnar. Bankinn segir að þær forsendur sem nú séu til staðar séu síst til þess fallnar að auka eftirspurn eftir íbúðum og ætla megi að enn sé töluverður þrýstingur til lækkunar íbúðaverðs til staðar. „Endurspegla væntingar um frekari lækkanir bæði ástand á framboðs- og eftirspurnarhlið markaðarins sem lýst er í umfjölluninni hér að ofan. Opinberar spár um þróun íbúðaverðs hafa gert ráð fyrir að það komi til með að lækka um helming að raunvirði frá því að það náði hámarki í ársbyrjun 2008. Í nóvember hafði íbúðaverð lækkað um 35,4% að raunvirði frá þeim tíma og samkvæmt þeim spám ætti mesta lækkunin að vera komin fram, þó líklega sé botninum ekki náð í þeim efnum,“ segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira