Íslenskir fjárfestar í samstarf við rafbílaframleiðendann REVA 12. nóvember 2009 11:15
Íslenska fjárfestingarfélagið Northern Lights Energy og rafbílaframleiðandinn REVA undirrita samkomulag um sölu og markaðssetningu REVA á Íslandi. Fyrstu eitthundrað rafbílarnir verða afhendir á næsta ári og hagkvæmisathugun er í gangi um uppsetningu samsetningaverksmiðju rafbíla hér á landi. Í tilkynningu segir að Northern Lights Energy (NLE) stendur að verkefninu „2012 Nýtt upphaf" sem snýst um þróun grunnkerfis og þjónustu fyrir rafbíla á Íslandi. NLE hefur náð samkomulagi við REVA um sölu og markaðssetningu REVA rafbíla á Íslandi og í Færeyjum. Á bílasýningunni í Frankfurt í september síðastliðnum frumsýndi REVA nýjan rafbíl, REVA NXR. Bíllinn er fjögurra sæta, þriggja dyra fjölskyldubíll sem hentar vel sem borgarbíll. Hámarkshraði er 104 km á klst. og hægt er að komast 160 km vegalengd á einni hleðslu. Á komandi árum mun REVA setja á markað eitt nýtt módel á ári og er næsta í röðinni tveggja sæta sportbíllinn NXG. NLE mun hefja sölu og markaðssetningu á nýja rafbílnum frá REVA um mitt næsta ár og fá viðskiptavinir fyrstu bílana afhenta í árslok en þeir verða þeir fyrstu sem REVA afhendir í Evrópu. REVA hefur á undanförnum árum selt rafbíla í 26 löndum. Fyrirtækið kynnti nýlega samstarfsverkefni með General Motors (GM) sem felst í því að útvega drifbúnað og rafstýrikerfi fyrir Chevrolet Spark, nýjan rafbíl sem GM hyggst setja á markað árið 2011. Bílarnir sem koma til landsins koma úr nýrri verksmiðju sem hefur framleiðslugetu upp á 30.000 rafbíla á ári, en verksmiðjan er ein sú umhverfisvænsta í heiminum og gengur að mestu fyrir sólarorku. NLE og REVA eru að meta hagkvæmni þess að setja upp sambærilega samsetningarverksmiðju hér á landi, sem þjónusta myndi Evrópumarkað. „NLE vinnur að þróun og uppsetningu rafhleðslukerfis fyrir rafbíla hér á landi undir merkjum 2012 nýtt upphaf. Hátt hlutfall endurnýjanlegra og vistvænna orkugjafa gera Ísland að ákjósanlegum stað fyrir mengunarfría rafbíla" segir Gísli Gíslason, stjórnarformaður NLE. „Við erum mjög spennt yfir samstarfinu við NLE. 2012 verkefnið er eitt það metnaðarfyllsta á sviði rafbíla í heiminum í dag og við erum ánægð með að geta lagt tækni okkar og vörur til verkefnisins," segir Keith Johnston, forstjóri Evrópudeildar REVA.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira