Moody´s segir óvissu um getu stjórnvalda til að styðja OR 12. nóvember 2009 10:52
Lánsmatsfyrirtækið Moody´s segir í áliti sínu um nýtt lánshæfismat sitt á Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að lækkunin á matinu niður í rusl-flokk sé meðal annars vegna óvissu um hvort stjórnvöld geti staðið við bakið á fyrirtækinu. Höfuðástæðan fyrir lækkuninni er, eins og fram kemur í tilkynningu OR til kauphallarinnar, að lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins var lækkuð. Breytt einkunn hefur engin áhrif á kjör gildandi lánasamninga Orkuveitu Reykjavíkur. Með stjórnvöldum á Moody´s hér við Reykjavíkurborg enda tekið fram í álitinu að borgin eigi 93,5% í OR. Moody´s segir auk framangreinds að einkunnin endurspegli þar að auki að ekki er til staðar bein ábyrgð stjórnvalda til handa OR. Hér má geta til samanburðar að ríkisstjórnin gaf fyrr í ár út yfirlýsingu um að hún myndi leggja Landsvirkjun til 300 milljónir dollara ef fyrirtækið þyrfti á slíku fé að halda aukalega. Í áliti Moody´s um OR segir að matið byggi á..."þeirri staðreynd að fari svo að stórar og mótsagnakenndar kröfur verði gerðar á hendur stjórnvalda gæti stuðningur (við OR) ekki ætíð verið til staðar." Fram kemur að veiking krónunnar hafi leitt til vaxandi skuldabyrðar hjá OR en fyrirtækið er að mestu fjármagnað í erlendri mynt. Á móti eru tekjur OR í augnablikinu að mestu í íslenskum krónum. Þetta hefur leitt til veikingar á fjárhagsstöðu fyrirtækisins sem var ekki beysin fyrir. Það jákvæða sem Moody´s sér er að OR er fjármagnað út árið 2010 og að líklegt sé að OR nái að ljúka framkvæmdum á Hellisheiði. Þetta myndi hafa það að verkum að orkusalan þaðan til nýs álvers myndi auka tekjur OR í dollurum.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira