Kaupþing tók 1998 yfir á leynifundi 8. desember 2009 18:32
Kaupþing tók yfir 1998, móðurfélag Haga, á leynilegum fundi í höfuðstöðvum bankans þann 20. október. Enginn af þáverandi stjórnarmönnum sat fundinn en þeim var öllum skipt út fyrir starfsmenn bankans síðar þann dag. Jóhannes í Bónus kom aftur inn í stjórnina sex dögum síðar eftir að hafa fengið frest til að koma með áætlun um endurfjármögnun félagsins. Daginn eftir að Hagar luku endurfjármögnum félagsins tók nýi Kaupþing yfir móðurfélag Haga, 1998. Í gögnum frá fyrirtækjaskrá má sjá að þann dag, 20. október, leysti bankinn til sín alla hluti í 1998 á grundvelli þess að lánasamningur var gjaldfelldur. En bankinn átti veð í hlutum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Hluthafafundurinn var haldinn í höfuðstöðvum Kaupþings. Þótti bankanum brýnt ð boða til fundarins án tafar og án tillits til þáverandi stjórnar félagsins. Af þessum ástæðum þótti nauðsynlegt að halda fundinn annars staðar en á heimili félagsins. Meðal gagna á fundinum voru tilkynningar bankans til félagsins um gjalddaga, innheimtuviðvörun og lokaaðvörun vegna greiðslufalls á lánasamningnum. Þrír starfsmenn bankans voru skipaðir í stjórn í stað Ingibjargar Pálmadóttur, Kristínar Jóhannesdóttur og Hreins Loftssonar. Sex dögum síðar er haldinn annar hluthafafundur og breytingar á stjórn tilkynntar til fyrirtækjaskrár. Þá vék starfsmaður Kaupþings fyrir Jóhannesi Jónssyni í Bónus. En hvað varð til þessara stakkaskipta hjá Kaupþingi? Samkvæmt heimildum fréttastofu var þetta meðal annars leið bankans til að knýja fram viðbrögð eigenda félagsins og þau létu ekki á sér standa. Jóhannes náði að gera samkomulag við bankann eftir að bankinn hafði í raun tekið félagið yfir, um frest til að skila áætlun um með hvaða hætti fjölskylda hans gæti komið að endurreisn félagsins. Þann 22. nóvember barst Arion tilboð frá Jóhannesi sem bankinn hyggst skoða fram í miðjan janúar. Jóhannes vildi ekki tjá sig um málið við fréttastofu í dag og Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion, vildi ekki veita neinar upplýsingar um málið.
Mest lesið Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Fleiri fréttir Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Sjá meira