Krafa um að bankar setji ólífvænleg fyrirtæki í þrot 27. nóvember 2009 13:18
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, segir að ekki eigi að halda rekstri ólífvænlegra fyrirtækja gangandi í virkri samkeppni við rekstrarhæf fyrirtæki. Slík fyrirtæki þyrfti að selja hið fyrsta eða þá að bankarnir myndu virða þau lögmál viðskiptalífsins að ólífvænleg fyrirtæki fari í þrot.Þetta kom fram í máli Þórðar á fundi Viðskiptaráðs í gærmorgun, um áhrif banka á rekstrarumhverfi fyrirtækja. Fjallað er um ræðuna á vefsíðu Viðsksiptaráð en Þórður var meðal framsögumanna á fundinum. Fjallaði Þórður um samkeppnisaðstæður fyrirtækja í bankakreppu og lagði áherslu á þau áhrif sem yfirtaka banka á fyrirtækjum hefði á samkeppnisaðila þeirra. Í máli Þórðar kom fram að bankarnir þyrftu að huga meir að samkeppnisáhrifum slíkra aðgerða og þá sérstaklega að halda ekki rekstri ólífvænlegra fyrirtækja gangandi í virkri samkeppni við rekstrarhæf fyrirtæki. Slík fyrirtæki þyrfti að selja hið fyrsta eða þá að bankarnir myndu virða þau lögmál viðskiptalífsins að ólífvænleg fyrirtæki fari í þrot.Þórður segir ennfremur að með því að tryggja rekstrargrundvöll ólífvænlegra fyrirtækja væru bankarnir að valda verulegum samkeppnisröskunum, enda hefðu flestir markaðir dregist umtalsvert saman frá hruninu og því væri minna pláss en áður fyrir fyrirtæki á þeim mörkuðum. Umframafkastagetu atvinnulífsins þyrfti að laga að þessum samdrætti í eftirspurn. Ef bankar ætla að halda ólífvænlegum fyrirtækjum gangandi er ljóst að mati Þórðar að þeir vinni gegn umræddri aðlögun á afkastagetu, sem getur á endanum leitt til þess að enn fleiri fyrirtæki lendi í rekstrarerfiðleikum. Þá velti Þórður því jafnframt upp hvort raunhæft væri að bankarnir gætu rekið þessi fyrirtæki betur en fyrri eigendur þeirra, að því er segir á vefsíðunni en þar má nálgast ræðu Þórðar í heild.
Mest lesið Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Segir Seðlabankann vera að falla í sömu gryfju og fyrir hrun Viðskipti innlent Stefán Atli gengur til liðs við Öryggismiðstöðina Viðskipti innlent Rannsókn: Vinnustaðapartí algengur vettvangur kynferðislegrar áreitni Atvinnulíf Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Viðskipti innlent Allir sýknaðir í Aurum-málinu Viðskipti innlent Hafa ekki valið enskt heiti fyrir Kerið Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Sjá meira