Arion ætlar að auglýsa eftir bankastjóra - Finnur hættir 1. desember 2009 13:24 Finnur Sveinbjörnsson.
Arion banki mun á næstu dögum verða fyrstur stóru viðskiptabankanna til að auglýsa stöðu bankastjóra lausa til umsóknar. Í tilkynningu frá bankanum segir að ráðningarsamningur Finns Sveinbjörnssonar bankastjóra sé tímabundinn og rennur hann út næstkomandi áramót. Skilanefnd Kaupþings banka og Bankasýsla ríkisins hafa verið meðvituð um þetta í samningaviðræðum undangenginna mánaða. Einnig kemur fram í tilkynningunni að Finnur hafi tilkynnt stjórn Arion banka og skilanefnd Kaupþings að hann muni ekki sækjast eftir starfinu að loknum ráðningartíma hans. Starfið verður því auglýst laust til umsóknar. „Það er mat stjórnar Arion banka og skilanefndar Kaupþings að með því að hafa þennan háttinn á við ráðningu nýs bankastjóra aukist traust viðskiptavina og kröfuhafa á bankanum og starfsemi hans," segir ennfremur. Finnur segir það hafa verið ljóst frá upphafi að um tímabundið verkefni væri að ræða. „Á þessu eina ári hefur bankinn lagað sig að nýjum veruleika eftir bankahrunið og tekist á við mörg flókin, erfið og umdeild verkefni. Stutt er síðan nýtt nafn bankans og stefnumótun voru kynnt og í dag fékkst langþráð niðurstaða um framtíðareignarhald bankans. Á þessum tímamótum er eðlilegt að nýr bankastjóri verði ráðinn," segir Finnur Sveinbjörnsson.
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Fleiri fréttir Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Sjá meira