Eimskip tapaði 96 milljörðum á síðasta ári 30. janúar 2009 00:13 Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips
Eimskip tapaði rúmum 96 milljörðum á síðasta ári samkvæmt ársskýrslu félagsins sem birt var í dag. Munar þar mestu um tap á fjórða ársfjórðungi sem var 72 milljarðar. Helsta ástæða þessa mikla taps er sú staðreynd að félagið færði kæligeymslustarfsemi sína í Norður-Ameríku, sem er í söluferli, undir aflagða starfsemi. Auk þess yfirtók Eimskið ábyrgð á XL Leisure Group þegar það fór í þrot og þurfti að afskrifa tæpa tíu milljarða vegna Innovate í Bretlandi. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, segir í tilkynningu frá félaginu að afkoma ársins hafi verið verulega slæm og sé fyrst og fremst skýrð með miklum gjaldfærslum og háum fjármagnsgjöldum. "Helstu gjaldfærslur félagsins á árinu má rekja til gjaldfærslu vegna ábyrgða tengdum flugrekstri, afskriftum óarðbærra fjárfestinga í Bretlandi og Hollandi, niðurfærslu viðskiptavildar og annarra eigna, háum fjármagnskostnaði vegna mikillar skuldsetningar og óhagstæðra lánakjara. Sé litið á rekstrarafkomu flutningastarfseminnar þá dregst hún saman milli ára. Skiptir þar mestu máli samdráttur í flutningum til Íslands á seinni hluta ársins. Á undanförnum mánuðum hefur félagið markvisst unnið að því að hagræða í rekstri til að mæta samdrætti og sú hagræðing mun skila sér að fullu á árinu 2009. Fjárhagsleg staða félagsins er óviðunandi en unnið er að sölu eigna í Norður Ameríku sem lækka mun skuldasetningu félagsins. Samhliða er unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu með lánveitendum félagsins. Markmið miða að því að endurskipulagningu verði lokið fyrir sumarið og að traustari stoðum verði skotið undir Hf.Eimskipafélag Íslands svo það megi verða áfram mikilvægur hlekkur i atvinnulífi landsins," segir Gylfi ennfremur.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira