New York Times fjallar um skýrslu Íslandsbanka 10. nóvember 2009 15:36
Bandaríska stórblaðið The New York Times fjallar í dag um skýrslu sem unnin var af Íslandsbanka um möguleika Bandaríkjamanna á því að auka orkuöflun sína með sjálfbærri orku, það er einkum gufuorku frá jarðhitasvæðum. Skýrslan var unnin af starfshópi bankans á sviði sjálfbærrar orkuöflunnar en forstjóri hópsins er Alex Richter. Fram kemur í skýrslunni að Bandaríkin gætu stóreflt orkuvinnslu sína með gufuaflsvirkjunum á jarðhitasvæðum. Telja skýrsluhöfundarnir að hægt sé að framleiða 40.000 megawött með núverandi tækni og að með þróun á nýjum gufuaflskerfum sé hægt að auka þá vinnslu um rúmlega 500.000 megawött í viðbót. Sem stendur framleiða Bandaríkjamenn 3.100 megawött með gufuaflsvirkjunum sem fá orku sína af jarðhitasvæðum en í landinu eru nú 70 slíkar virkjanir starfræktar. Skýrsluhöfundar segir að þótt orkan sé vissulega til staðar skorti töluvert á að fjármagn fáist til að nýta hana. „Fjármögnun og möguleikar á hlutafé eru eftir sem áður helstu hindranirnar fyrir jarðhitageirann," segir í skýrslunni. New York Times ræðir þetta atriði við C. J. Arrigo hjá Glacier Partners ráðgjafafyrirtækis á sviði sjávarafurða og jarðorkuvinnslu. Arrigo segir að hár stofnkostnaður vegna boranna, og áhættan fyrir fjárfesta fram að því að holurnar hafa sýnt að vinnslan borgi sig, sé helsti flöskuhálsinn fyrir fjárfestingar í greininni. Stjórnvöld í Bandaríkjunum eru þó áhugasöm um sjálfbæra orkuvinnslu og hafa sett í gang áætlun um að auka hana á næstu árum með t.d. skattaafsláttum til þeirra fjárfesta sem setja fé í gufuaflsvirkjanir. Þess má geta að Glacier Partners var stofnað af Glitni á sínum tíma og er nú undir stjórn Magnúsar Bjarnasonar en fyrirtækið er staðsett í New York.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Sjá meira