Týndu skuldabréfin skráð á heimasíðu skilanefndar Glitnis 9. nóvember 2009 16:01
Skuldabréfin sem upphaflega voru sögð týnd hjá skilanefnd Glitnis voru skráð á heimasíðu skilanefndarinnar á lista yfir skuldabréf bankans í heild frá 26. október síðastliðinn, tæpum tveimur vikum fyrir kröfuhafafund þar sem tlkynnt var um bréfin. Hægt er að sjá bréfin á þessum lista frá 26. október á heimasíðu skilanefndar. Slóðin er: http://www.glitnirbank.com/images/stories/MasterListofGlitnirISINS-102609.pdf Umrædd bréf eru þrjú talsins upp á 250 milljónir evra hvert og eru skáð í 7. til 9. neðstu línurnar á listanum. Skilanefnd Glitnis hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins sem hljóðar svo: „Vegna frétta fjölmiðla síðustu daga um liðlega 750 milljóna evra misræmi sem fram kom við afstemmningu á bókhaldi Glitnis nýverið og sem greint var frá á fundi með kröfuhöfum í síðustu viku, vill skilanefnd Glitnis taka fram: Þetta mál er nú til skoðunar hjá endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte en ekki hjá fjármálarannsóknafyrirtækinu Kroll, enda er ekkert sem bendir til á þessari stundu að misræmið tengist ólögmætum aðgerðum. Umrætt misræmi kom fram við afstemmningu á bókhaldi Glitnis við utanaðkomandi aðila, en sú vinna fer nú fram hjá Glitni og er liður í undirbúningi slitastjórnar og skilanefndar áður en tekin verður afstaða til krafna í bú Glitnis. Frestur til að lýsa kröfum í búið rennur út þann 26. nóvember næst komandi. Ekki er því um það að ræða að komið hafi í ljós ný krafa á hendur bankanum frá einhverjum einum aðila eins og ranglega hefur verið haldið fram í einstaka fjölmiðlum. Skilanefnd Glitnis mun greina frá niðurstöðu Deloitte um leið og hún liggur fyrir. Fh. skilanefndar Glitnis Árni Tómasson"
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira