Seðlabankinn hefur keypt gjaldeyri fyrir 15 milljarða á árinu 9. nóvember 2009 12:08
Það sem af er ári hefur Seðlabankinn keypt tæplega 15 milljarða kr. á gjaldeyrismarkaði, og varið til þess ríflega 80 milljónum evra. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að gjaldeyrisforði bankans hækkaði raunar um ríflega 16 milljarða kr. í októbermánuði samkvæmt nýlega birtum tölum á vef bankans. Kom sú aukning til af útborgun AGS á þeim hluta lánafyrirgreiðslu sjóðsins sem háð var fyrstu endurskoðun áætlunar hans og stjórnvalda. Nemur forðinn nú í heild 451 milljörðum kr. Á móti gjaldeyriseign bankans standa þó ýmsar skammtímaskuldbindingar, til að mynda innstæður á gjaldeyrisreikningum. Nettó gjaldeyrisstaða bankans til skemmri tíma er því tæpir 224 milljarða kr., og gefur hún réttari mynd af slagkrafti bankans í þeirri viðleitni sinni að halda aftur af óhóflegum sveiflum og myndun vítahrings í gengisþróun krónu. Ef miðað er við nettóstöðuna og umfang inngripa Seðlabankans það sem af er ári má álykta að inngrip bankans hafi ekki höggvið ýkja stór skörð í forða bankans, en þó er ljóst að því eru takmörk sett hversu lengi bankinn getur stundað slík kaup miðað við núverandi aðstæður á markaði. Greining fjallar um inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaðinn skömmu fyrir lokun hans s.l. föstudag. „Í ljósi inngripa Seðlabankans í síðustu viku eru orð Más Guðmundssonar Seðlabankastjóra á morgunverðarfundi viðskiptaráðs athyglisverð," segir í Morgunkorninu. „Már fjallaði þar meðal annars um réttmæti inngripa á gjaldeyrismarkaði og færði fyrir því rök að beiting gjaldeyrisforða gæti skipt sköpum við að varðveita fjármálastöðugleika við erfiðar aðstæður. Vísaði hann m.a. til reynslu ríkja á borð við Brasilíu, Kóreu og Ástralíu í þessu sambandi. Svo virðist sem koma Más í Seðlabankann hafi markað nokkra stefnubreytingu í þessum málum, því sérfræðingar bankans hafa á liðnum árum gjarnan haldið þeirri skoðun á lofti að inngrip á gjaldeyrismarkað séu gagnslítil."
Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Sjá meira