Verðbólgan sem fyrr mest á Íslandi 16. desember 2009 12:01
Verðbólgan á Íslandi lækkaði úr 13,8% í 12,4% milli október og nóvember síðastliðinn samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs. Af ríkjum evrópska efnahagssvæðisins er verðbólgan, sem fyrr, langmest hér á landi. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að verðbólgan mælist næst mest í Ungverjalandi (5,2%), svo í Rúmeníu (4,6%) og þar á eftir Póllandi (3,8%). Að meðaltali er verðbólgan nú um 1,1% meðal ríkja EES en um 0,5% innan ríkja evrusvæðisins. Þeim ríkjum sem eru að upplifa ástand verðhjöðnunar fækkaði á milli október og nóvember en eins og kunnugt er hafa mörg ríki innan Evrópu verið að upplifa slíkt ástand á undanförnum mánuðum. Verðhjöðnun fer gjarnan saman við samdrátt og vaxandi atvinnuleysi líkt og verið hefur víða í Evrópu. Enn er verðhjöðnunin mest á Írlandi, eða um 2,8%, en þar í landi hefur verið mikill samdráttur í landsframleiðslu, auk þess sem atvinnuleysi hefur farið hratt vaxandi. Það var Hagstofa Evrópusambandsins sem birti tölur um þetta nú í morgun. Stærsti munur samræmdrar vísitölu neysluverðs og þeirrar vísitölu sem hér á landi er almennt notuð sem mælikvarði á verðbólgu, myndar viðmið verðbólgumarkmiðs Seðlabankans og Hagstofan reiknar er að íbúðaverð er ekki tekið beint inn í samræmdu vísitöluna. Að undanförnu hefur íbúðaverð lækkað töluvert og mælist verðbólgan því nokkuð hærri samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs en hinni hefðbundnu. Samkvæmt þeirri síðarnefndu mældist verðbólgan í nóvember 8,6% sem er um 3,8 prósentustigum lægri en miðað við þá samræmdu. Að húsnæði undanskildu mældist verðbólgan hins vegar 12,5% sem er nánast sama gildi og verðbólgan samkvæmt þeirri samræmdu.
Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Sjá meira