Landsframleiðsla á mann 21% yfir meðaltali ESB-ríkja 16. desember 2009 12:05
Landsframleiðsla á mann var hér á landi 21% yfir meðaltali ESB-ríkjanna í fyrra. Er þá búið að taka tilliti til mismunandi kaupmáttar landsframleiðslunnar í hverju landi fyrir sig, þ.e. landsframleiðsla ríkjanna er metin í sömu mynt.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að Ísland sé þarna í liði með norrænum vinum sínum Danmörk og Svíþjóð, en landsframleiðsla þessara landa á mann er 20% yfir meðaltali ESB ríkjanna. Finnland er 17% yfir meðaltalinu en Noregur er sér á báti með landsframleiðslu á mann sem er 91% yfir meðaltali ESB ríkjanna. Kemur þetta fram í tölum sem hagstofa ESB birti í gær.Mikil atvinnuþátttaka, lítið atvinnuleysi og langur vinnutími skýrir að vissu marki hversu ofarlega Ísland er í þessum samanburði. Ef samanburðurinn væri gerður á landsframleiðslu á hverja vinnustund myndi Ísland koma verr út.Ljóst er einnig að fjármálakreppan mun færa landið niður á þessum lista en auk samdráttar í landsframleiðslu hefur gengi krónunnar lækkað umtalsvert og verðbólgan verið langt umfram það sem hún hefur verið í öðrum ESB ríkjum á árinu. Í þessum samanburði á efnahagslegri velmegun þjóða hefur fjármálakreppan því veikt stöðu Íslands talsvert.Þrátt fyrir fjármálakreppuna er ljóst að íslenska hagkerfið er enn meðal þeirra sem bjóða upp á hvað besta efnahagslega velmegun. Í þessum samanburði ESB ríkjanna sést að mörg lönd sambandsins eru mun verr stödd á þennan mælikvarða.Þannig er landsframleiðslan metin með ofangreindum hætti 41% af ESB meðaltalinu í Búlgaríu, 57% í Lettlandi og 62% í Litháen. Í Póllandi er hlutfallið 56% en þess má geta að Pólverjar eru stærsti einstaki hópur innflytjenda hér á landi eða ríflega 40%.
Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Sjá meira