Skuldabréf Landsbankans verður 247 milljarðar 16. desember 2009 10:57
Samið hefur verið um að Landsbankinn (NBI hf.) gefi út 247 milljarða króna skuldabréf til Landsbanka Íslands hf. Skuldabréfið er í erlendum gjaldmiðlum til 10 ára og, af því verða aðeins greiddir vextir fyrstu fimm árin.Þetta kemur fram í tilkynningu hjá bankanum en þessa stundina er blaðamannafundur í gangi til að kynna endurskipulaginu bankans og nýtt eignarhald. Tekið skal fram að nafnverð skuldabréfsins er 260 milljarðar kr. eins og áður hefur komið fram. Landsbankinn bókfærir það hinsvegar á 247 milljarða kr. vegna hagstæðra vaxta.Með þessu er Landsbankanum tryggð erlend fjármögnun sem miklu mun skipta fyrir íslenskt efnahagslíf. Þá er gert ráð fyrir að gefin verði út hlutabréf til gamla bankans að fjárhæð 28 milljarðar króna sem svarar til 20% heildarhlutafjár Landsbankans.Heildarfjárhæð skuldabréfsins og hlutabréfanna samsvarar mati Landsbankans á yfirteknum eignum umfram skuldir, en er lágmarksverðmæti eignanna að mati skilanefndar og ráðgjafa hennar. Fari svo að verðmæti yfirfærðra eigna reynist meira en mat Landsbankans gerir ráð fyrir mun bankinn gefa út viðbótarskuldabréf til þrotabús Landsbanka Íslands hf. sem gæti numið allt að 92 milljörðum króna, en þess í stað fengi ríkissjóður áðurnefnd hlutabréf að fjárhæð 28 milljarðar til baka. Óháður aðili mun annast lokamat á verðmæti eignanna í árslok 2012.Stofnefnahagsreikningur Landsbankans er stærsti efnahagsreikningur þeirra þriggja banka sem endurreistir hafa verið. Heildareignir eru 944 milljarðar króna, þar af nema útlán til viðskiptavina bankans um 608 milljörðum króna, eiginfjárframlag íslenska ríkisins er 122 milljarðar, lausafé 39 milljarðar, hlutabréfaeign 30 milljarðar og skuldabréfaeign 24 milljarðar.Góð dreifing er á útlánasafni bankans, um 78% þeirra eru til fyrirtækja en um 22% til einstaklinga. Um 26% útlána eru til sjávarútvegsfyrirtækja, um 15% tengjast fasteignaviðskiptum, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Rétt 9,4% lána eru til eignarhaldsfélaga og rúmlega 26% lána eru til annarra atvinnugreina.Innlán viðskiptavina nema í stofnefnahagnum um 462 milljörðum króna. Innlán fjármálastofnana eru um 85 milljarðar króna og þá nemur upphæð skuldabréfs vegna yfirtöku lána úr þrotabúi Landsbanka Íslands hf. um 247 milljörðum króna.„Það samkomulag gert hefur verið við skilanefnd Landsbanka Íslands er lokaskref ríkisstjórnarinnar í endurreisn bankanna þriggja. Samkomulagið uppfyllir öll meginmarkmið ríkisstjórnarinnar um að við stöndum nú að nýju uppi með traust bankakerfi, að sanngjarnt uppgjör við kröfuhafa hafi farið fram og að útlit er fyrir ásættanlega ávöxtun á eiginfjárframlagi ríkisins," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. „Niðurstaðan er mjög ásættanleg fyrir Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. og ánægjulegt er að búið sé að fá niðurstöðu í málið. Samningaferlið hefur verið mjög mikilvægt verkefni sem mikil vinna hefur verið lögð í. Samningurinn markar ákveðin tímamót og gerir okkur kleift að setja aukinn kraft í önnur stór og veigamikil verkefni," segir Lárentsínus Kristjánsson formaður Skilanefndar Landsbanka Íslands.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira