IE-deild karla: Njarðvík vann Suðurnesjaslaginn Ómar Þorgeirsson skrifar 23. október 2009 20:53 Magnús Þór Gunnarsson átti góðan leik með Njarðvík í kvöld.
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld þar sem hæst bar að Njarðvík vann 67-74 sigur gegn Grindavík í Suðurnesjaslag í Röstinni í Grindavík. Njarðvíkingar eru enn taplausir í deildinni líkt og KR-ingar sem unnu í kvöld 107-114 sigur gegn Tindastóli. Þá vann Breiðablik sinn fyrsta sigur í vetur og það með stæl því liðið vann 67-96 stórsigur gegn FSu. Staðan í hálfleik hjá Grindavík og Njarðvík var 38-34 heimamönnum í vil en gestirnir lögðu grunninn að sigri sínum með ótrúlegum þriðja leikhluta þar sem þeir skoruðu 24 stig á móti aðeins 8 stigum heimamanna. Sigur Njarðvíkinga var því í raun aldrei í hættu þó svo að Grindvíkingar hafi saxað duglega á forskotið í fjórða leikhlutanum en lokatölur urðu sem segir 67-74. Hjá Njarðvík var Magnús Þór Gunnarsson atkvæðamestur með 21 stig en Friðrik Stefánsson kom næstur með 18 stig og 15 fráköst. Hjá Grindvíkingum var Þorleifur Ólafsson stigahæstur með 15 stig en Brenton Birmingham kom næstur með 13 stig. Nánari umfjöllun um leik Grindavíkur og Njarðvíkur ásamt viðtölum birtist á Vísi síðar í kvöld. Úrslit kvöldsins: Grindavík-Njarðvík 67-74 Tindastóll-KR 107-114 FSu-Breiðablik 67-96
Dominos-deild karla Mest lesið Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Róbert hættir hjá HSÍ Handbolti Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Handbolti Enduðu á nærbuxunum og gátu ekki flogið Fótbolti Sjáðu dramatíkina á Anfield: Van Dijk skoraði og Simeone brjálaðist Fótbolti „Þessi viðbrögð eru auðvitað ekki í lagi“ Fótbolti „Maður spyr sig hvar maður á heppnina inni“ Íslenski boltinn Vann Ólympíubrons en ætlar að keppa á Steraleikunum og slá heimsmetið Sport Wildcard hugleiðingar Fantasýn: Haaland inn, Salah út og bíða með Isak Enski boltinn Mourinho strax kominn með nýtt starf Fótbolti Fleiri fréttir Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Gaf báðum stelpunum sem hann datt á áritaða treyju Sjá meira