Vaxtagreiðslur ríkissjóðs aukast um 167% á árinu 6. nóvember 2009 08:50
Vaxtagreiðslur ríkissjóðs á fyrstu níu mánuðum ársins hafa aukist um 167% miðað við sama tímabil í fyrra. Þær fóru úr 13,7 milljörðum kr. í fyrra og upp í 36,6 milljarða í ár. Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2009 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er handbært fé frá rekstri neikvætt um tæpa 89 milljarða kr., sem er 107,9 milljörðum króna lakari útkoma heldur en á sama tímabili í fyrra. Tekjur reyndust 25,3 milljörðum minni en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 65,8 milljarða kr. Innheimtar tekjur ríkissjóðs á fyrstu níu mánuðum ársins voru rúmlega 307 milljarða kr. sem er 25 milljarða kr. minna en á sama tíma árið 2008. Áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir að tekjur tímabilsins yrðu tæpir 310 milljarða kr. og er frávikið því neikvætt um 2,5 milljarða kr. sem er hið minnsta frá ársbyrjun. Hér valda þó miklu þær breytingar sem gerðar voru á innheimtu fjármagnstekjuskatts á árinu og leiddu til mikils tekjuinnstreymis á fyrsta eindaganum í ágústmánuði, en ekki var gert ráð fyrir þessum breytingum í áætlun fjárlaga. Innheimtan hefur allt frá ársbyrjun verið minni en reiknað var með í áætlun fjárlaga, en eftir eindaga fjármagnstekjuskattsins í byrjun ágúst hefur frávikið þó verið lítið. Þess bera að gæta að hinar breyttu reglur, sem fela í sér ársfjórðungsleg skil á staðgreiðsluskyldum fjármagnstekjuskatti einstaklinga í stað árlegra áður, leiða til þess að innheimtutölur á síðari hluta árs 2009 eru ekki samanburðarhæfar við tölur fyrri ára nema leiðrétt sé fyrir áhrifum þessarar breytingar. Greidd gjöld námu rúmum 384 milljörðum kr. og jukust um 66 milljarða kr. frá fyrra ári, eða 21%. Milli ára hækka vaxtagjöld ríkissjóðs mest eða um 23 milljarða kr. Þá jukust útgjöld til almannatrygginga og velferðarmála um rúman 21 milljarða kr. sem skýrist að mestu af 17,1 milljarða kr. aukningu útgjalda Atvinnuleysistryggingasjóðs, 3,3 milljarða kr. aukningu vaxtabóta og 1,1 milljarðs kr. aukningu á barnabótum. Útgjöld til heilbrigðismála aukast um 7,5 milljarða kr. milli ára þar sem útgjöld til Sjúkratrygginga skýra 6,8 milljarða kr. Óregluleg útgjöld aukast um 2,7 milljarða kr. milli ára sem skýrist að mestu af greiddum fjármagnstekjuskatti ríkissjóðs sem eykst um 1,8 milljarð kr. Útgjöld til menntamála aukast um 2,2 miljarða kr. milli ára, þar af útgjöld til Lánasjóðs íslenskra námsmanna um 1,1 milljarð kr. og til framhaldsskóla um 1,4 milljarð kr. Útgjöld til löggæslu, réttargæslu og öryggismála jukust um 1,8 milljarð kr. milli ára þar sem fjárfesting Landhelgissjóðs í varðskipi og flugvél skýrir hækkunina að langstærstu leyti. Útgjöld til menningar-, íþrótta- og trúmála aukast um 1,4 milljarð kr. milli ára þar sem útgjöld til RÚV skýra 483 milljónir kr. og viðhald og stofnkostnaður menningastofnana 411 milljónir kr. Útgjöld til efnahagsog atvinnumála aukast um 1,3 milljarð kr. og skýrir Hafnarbótasjóður um 0,8 milljarð kr. Þá aukast útgjöld til Ábyrgðasjóðs launa um 752 milljónir á milli ára. Breytingar í öðrum málaflokkum eru svo minni en þau sem áður hafa verið talin.
Mest lesið Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Hættu í megrun: „Það varð eiginlega allt vitlaust“ Atvinnulíf Segir Seðlabankann vera að falla í sömu gryfju og fyrir hrun Viðskipti innlent Stefán Atli gengur til liðs við Öryggismiðstöðina Viðskipti innlent Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Sjá meira