Endurskipulaginu Landic Property lokið, nauðasaminga leitað 6. nóvember 2009 15:45
Landic Property hf. hefur samið við NBI (Landsbankann), Nýja Kaupþing, Íslandsbanka, Glitni, Haf Funding og Byr um fjárhagslega endurskipulagningu íslenska fasteignafélagsins Landic Property Ísland og dótturfélaga. Kröfuhafar sem fara með yfir 76% af upphæð krafna hafa lýst yfir stuðningi við umsókn um heimild til nauðasamningsumleitana sem lögð var fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag. Í tilkynningu segir að samningarnir tryggja áframhaldandi rekstargrundvöll innlends fasteignasafns Landic Property sem samanstendur af 120 fasteignum, yfir 400 þúsund fermetrum, einkum verslunar- og skrifstofuhúsnæði miðsvæðis í Reykjavík. Landic Property Ísland er stærsta fasteignafélag landsins en meðal eigna félagsins eru Kringlan og Hilton Reykjavík Nordica. Landic Property Ísland er nú í meirihlutaeigu íslenskra banka. Eignir félagsins eru um 90 milljarða króna virði. Viðar Þorkelsson hefur verið ráðinn forstjóri Landic Property Ísland og Einar Þorsteinsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri félagsins. Starfsemi móðurfélagsins, Landic Property hf., hefur nú verið hætt og hefur stjórn þess óskað eftir heimild til nauðasamningsumleitana við lánardrottna. Um mitt ár 2008 voru eignir Landic Property hf., að stærstum hluta fasteignir á Norðurlöndunum. Mikil hækkun skulda vegna falls íslensku krónunnar og lækkun fasteignaverðs í kjölfar efnahagshrunsins setti rekstur móðurfélagsins í uppnám og hefur félagið verið í greiðslustöðvun síðan 16. apríl 2009. Var eigið fé Landic Property þá orðið neikvætt. Fulltrúar kröfuhafa tóku sæti í stjórn félagsins og eigendur viku. Síðastliðna 12 mánuði hafa stjórnendur, í samvinnu við kröfuhafa, unnið að því að verja íslenska starfssemi félagsins og losa um erlendar eignir og veðskuldir en í því ferli hefur meðal annars verið gengið frá sölu á eignasöfnum félagins í Danmörku og Finnlandi. Eftirstandandi óveðsettar eignir móðurfélagsins Landic Property hf. nema nú rúmlega 5 milljörðum króna, en skuldir við ótryggða kröfuhafa eru taldar nema um 120 milljörðum króna. Stjórn félagsins telur að hagsmunum kröfuhafa sé best borgið með því að kröfuhöfum verði afhentar allar eignir móðurfélagins fyrir atbeina nauðasamninga og félaginu slitið. Kröfuhafar sem fara með yfir 76% af upphæð krafna hafa lýst yfir stuðningi við umsókn um heimild til nauðasamningsumleitana sem lögð var fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag. „Það er vissulega ánægjulegt að tekist hefur að verja rekstur íslenska rekstrarfélagsins, enda var það yfirlýst markmið þeirra björgunaraðgerða sem staðið hafa yfir allt þetta ár. Landic Property Ísland býr að vönduðu eignasafni og reksturinn er tryggur," segir Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property Ísland í tilkynningunni. „Á sama tíma eru það vonbrigði að lánardrottnar og hluthafar Landic Property hf. verða fyrir jafnmiklu tjóni eins og raun ber vitni. Það er þó mitt mat að með samvinnu við kröfuhafa og samstilltu átaki starfsmanna hafi tekist að bjarga því sem bjargað varð og færi ég þessum aðilum kærar þakkir fyrir þeirra framlag við erfiðar aðstæður."
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira