Viðskipti innlent

Gamma: GBI hækkaði um 0,02%

Skuldabréfavísitölur GAMMA breyttust lítið í frekar litlum viðskiptum í dag. Hækkaði heildarvísitalan GAMMA: GBI um 0,02% í 4,5 milljarða veltu. Verðtryggð bréf hækkuðu um 0,05% í 1 milljarða veltu og óverðtryggð bréf lækkuðu um -0,06% í 3,5 milljarða veltu. Hefur aðeins dregið úr hækkunum undanfarinna vikna og er vikubreyting heildarvísitölunnar nú í fyrsta skipti neikvæð síðan í lok september.

                                                           Breytingar

Vísitala                                         1 dagur   1 vika      1 mánuður

GAMMA: GBI                  177,239   0,024%  -0,067%   2,828%

GAMMAi: Verðtryggt      182,522   0,050%  -0,030%   3,274%

GAMMAxi: Óverðtryggt  155,664  -0,056%  -0,177%   1,484%



Heildarvelta Skuldabréfa: 4,51 ma

Heildarvelta Íbúðabréfa (verðtryggð): 1,02 ma

Heildarvelta Rikisbréfa (óverðtryggð): 3,49 ma



Vísitölurnar eru settar 100 þann 1. janúar 2005 og sýna heildarávöxtun helstu skuldabréfa á markaði (Íbúðabréf og Ríkisbréf með viðskiptavakt). Skuldabréfin eru hlutfallsvigtuð miðað við markaðsverðmæti þeirra í hlutfalli af heildarmarkaðsverðmæti bréfa í vísitölunni. Birting ofangreindra upplýsinga er heimil gegn því að heimildar sé getið. Skuldabréfavísitölur GAMMA eru reiknaðar og birtar af GAM Management hf., óháðu og sérhæfðu ráðgjafar- og sjóðastýringarfyrirtæki með starfsleyfi frá FME sem tekur til reksturs verðbréfasjóða og fjárfestingarráðgjafar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×