Hlutabréf Össurar taka flugið 17. desember 2009 06:00 Forstjóri Össurar Mikil eftirspurn hefur verið eftir hlutabréfum Össurar ytra eftir að félagið var skráð á markað í Danmörku. Fréttablaðið/vilhelm
Talsverð hreyfing var með hlutabréf stoðtækjafyrirtækisins Össurar jafnt hér sem á hlutabréfamarkaði í Kaupmannahöfn í Danmörku í gær eftir að sænski bankinn SEB Enskilda birti nýtt og verulega uppfært verðmat á félaginu. Gengi bréfanna rauk upp um fimm prósent hér en um tæp átta í Danmörku. Enskilda segir í mati sínu að uppgjör Össurar á þriðja ársfjórðungi sé umfram væntingar. Miklar vonir séu bundnar við rafeindastýrðar vörur með gervigreind auk þess sem vænta megi betri sölu á öðrum vöruflokkum. Greinendur bankans mæla með því að fjárfestar bæti við hlut sinn og setji 8,2 danskra króna verðmiða á hvern hlut félagsins. Það jafngildir rúmum tvö hundruð íslenskum krónum samanborið við 147 krónur hér. Þetta er um fjörutíu prósentum hærra mat en núverandi verð bréfanna ytra. Þar standa þau í 6,10 dönskum krónum á hlut, sem jafngildir 152 íslenskum krónum á hlut samanborið við 147,5 krónur hér. Talsverð eftirspurn hefur verið eftir hlutabréfum Össurar ytra í kjölfar skráningar félagsins þar í september. Framboð hefur á móti verið takmarkað. Valdimar Halldórsson, sérfræðingur hjá IFS Greiningu, segir mikla eftirspurn eftir bréfunum ekki koma sér á óvart enda Össur gott félag með frábært sjóðstreymi. Svo virðist sem þeir sem hafi keypt bréfin í útboðinu á dögunum vilji ekki selja mikið af þeim í bili nema fyrir hærra verð. Talsverður áhugi hafi vaknað á fyrirtækinu ytra eftir skráninguna þar og greini nú fjögur fjármálafyrirtæki Össur erlendis.- jab
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Sjá meira