Gengið frá samkomulagi við stórnotendur raforku 7. desember 2009 12:28
Fjármálaráðherra og iðnaðarráðherra, annars vegar, og Samtök atvinnulífsins og stórnotendur raforku, hins vegar, undirrituðu í dag sameiginlega yfirlýsingu um ráðstafanir til að mæta erfiðri stöðu ríkisstjóðs og til að stuðla að auknum fjárfestingum í atvinnulífinu.Í frétt um málið á vefsíðu stjórnarráðsins segir að í yfirlýsingunni kemur m.a. fram að vegna mikils samdráttar í efnahagslífinu og erfiðrar stöðu ríkissjóðs í kjölfar hans hafi það orðið að samkomulagi við nokkra af stærstu notendum raforku í landinu að þeir greiði fyrirfram árlega samtals kr. 1.200 milljónir kr. á árunum 2010, 2011 og 2012 upp í væntanlega álagningu á tekjuskatti og öðrum opinberum gjöldum á árunum 2013-2018.Fyrirframgreiðslan skiptist milli aðila í hlutfalli við raforkunotkun og er bundin við uppgjörsmynt þeirra fyrirtækja sem í hlut eiga. Þetta fyrirkomulag, ásamt sköttum á raforku og kolefnislosun vegna fljótandi eldsneytis, sem lagðir verða á með sérstökum lögum, mun standa í 3 ár frá árinu 2010 að telja. Í kjölfar yfirlýsingarinnar verður lagt fram á Alþingi frumvarp til laga þar sem nánar er kveðið á um framangreinda fyrirframgreiðslu.Jafnframt kemur fram í yfirlýsingunni að ríkisstjórnin mun leggja fram í upphafi vorþings 2010 frumvarp til laga um ívilnanir vegna fjárfestinga á Íslandi. Markmið þeirra laga verður að örva fjárfestingu í atvinnurekstri hér á landi og að tryggja markvissa beitingu hvata til fjárfestinga, innan þess ramma sem ákvæði EES samningsins setja.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira