Launakröfum æðstu stjórnenda hafnað á grundvelli gjaldþrotalaga Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. desember 2009 14:11 Birna Einarsdóttir er ein þeirra sem gerðu kröfu í þrotabú Glitnis.
Slitastjórn Glitnis ákvað að hafna launakröfum allra þeirra fyrrverandi starfsmanna bankans sem sátu í framkvæmdastjórn bankans. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar, segir að ákvörðunin sé tekin á grundvelli 112. greinar gjaldþrotalaga. Þar segir meðal annars að þeir sem hafi haft með höndum framkvæmdastjórn félags eða stofnunar sem er til gjaldþrotaskipta geti ekki gert launakröfu í þrotabú. Slitastjórn Landsbankans hefur hins vegar ekki tekið afstöðu til sama lagaákvæðis. Steinunn segir að aldrei hafi reynt á fyrrgreint lagaákvæði. Það sé álitamál hvort lagaákvæðið eigi við um forstjóra eða framkvæmdastjóra en slitastjórnin hafi ákveðið að túlka það svo að það taki til allrar framkvæmdastjórnarinnar. Steinunn segir að það verði haldinn fundur þann 17. desember síðastliðinn þar sem slitastjórn muni gera grein fyrir kröfuskránni og ákvörðun slitastjórnar. Þar gefist kröfuhöfum tækifæri til að andmæla ákvörðun slitastjórnarinnar. „Ef það gerist, þá er kominn upp ágreiningur milli slitastjórnar og kröfuhafa um það hvernig eigi að flokka kröfurnar. Sá ágreiningur gæti farið fyrir dómstóla ef ekki tekst að leysa úr honum," segir Steinunn. Frá Páli Benediktssyni, upplýsingafulltrúa slitastjórnar Landsbankans, fengust þær upplýsingar að ekki hefði verið tekin afstaða til launakrafna í þrotabú bankans. Það mun skipta máli hvernig afstöðu slitastjórnin tekur til fyrrgreinds lagaákvæðis enda nema kröfur framkvæmdastjóra bankans hundruðum milljóna. Á meðal þeirra framkvæmdastjóra sem gerðu launakröfu í þrotabú Glitnis er Birna Einarsdóttir sem nú er bankastjóri Íslandsbanka.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira