Stoðir tapaði 350 milljörðum 11. desember 2009 18:09
Aðalfundur eignarhaldsfélagsins Stoða var haldinn í dag. Í ársreikningi félagsins fyrir árið 2008 var tekið mið af mati á verðmæti eigna og lýstum kröfum lánardrottna Stoða í tengslum við nauðasamninga sem félagið gerði við kröfuhafa í vor, að fram kemur í fréttatilkynningu. Bókfært tap Stoða frá 1. júlí 2008 til 31. desember 2008 nam 291,2 milljörðum króna. Samanlagt bókfært tap móðurfélags og dótturfélaga vegna rekstrarársins 2008 nam 350,6 milljörðum króna. Fjárhagslegri endurskipulagningu Stoða er lokið. Heildareignir félagsins námu 32 milljörðum króna í lok júní 2009 og var eiginfjárhlutfall félagins 69%. Fjármögnun félagsins hefur því verið tryggð til langs tíma, að fram kemur í tilkynningunni. Kröfuhafar Stoða eignuðust fyrr á árinu allt hlutafé í Stoðum en stærstu eignir Stoða eru Tryggingarmiðstöðin og Refresco. Aðalfundur eignarhaldsfélagsins var haldinn í dag. Í tilkynningunni segir að endurskipulagning fjárhags Stoða hafi verið byggð á þremur meginþáttum. „Í fyrsta lagi samþykktu hluthafar Stoða að afskrifa allt hlutafé sitt í félaginu. Í öðru lagi náðust samningar við tryggða kröfuhafa um skuldajöfnun, endurfjármögnun skulda og greiðslu hluta veðtryggðra skulda með forgangshlutafé í Stoðum. Í þriðja lagi voru ótryggðar kröfur gerðar upp með reiðufé og almennu hlutafé í Stoðum í samræmi við nauðasamninga, sem samþykktir voru með öllum greiddum atkvæðum kröfuhafa. Kröfuhafar Stoða eignuðust þannig allt hlutafé í félaginu samhliða því sem fjármögnun félagsins var tryggð til langs tíma." Heimtur allra kröfuhafa Stoða voru metnar um 27% síðastliðið vor miðað við verðmæti eignasafns Stoða í aðdraganda nauðasamninga. „Meginforsenda endurskipulagningar Stoða var að hagsmunum kröfuhafa væri best borgið með því að halda starfsemi félagsins áfram, í trausti þess að verðmæti eignasafns félagsins muni hækka í framtíðinni, kröfuhöfum og núverandi hluthöfum til hagsbóta. Endanlegar heimtur munu þannig ráðast af framtíðarverðmæti eignasafns Stoða." Í tilkynningunni segir að helstu eignir Stoða séu 99,1% hlutur í Tryggingamiðstöðinni (TM) og 51% hlutur í evrópska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco. Meðal annarra eigna Stoða má nefna eignarhluti í Royal Unibrew, Nordicom, Glacier Renewable Energy Fund og Inspired Gaming. Hluthafar Stoða eru nú 112 talsins. Þrír hluthafar fara með yfir 10% af atkvæðamagni hlutabréfa: Glitnir, NBI og Arion banki. Stjórn Stoða, sem fyrst var kjörin á hluthafafundi þann 17. júlí og var endurkjörin á aðalfundinum í dag, skipa Eiríkur Elís Þorláksson, Sigurjón Pálsson og Sigurður Jón Björnsson. Starfsmenn Stoða eru þrír talsins að Jóni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra félagsins, meðtöldum.
Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Sjá meira