Fjögur skuldamál gegn Straumi tekin fyrir 11. desember 2009 10:53 William Fall, fyrrum bankastjóri Straums.
Alls verða fjögur skuldamál gegn þrotabúi Straums-Burðarás tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þar á meðal er vinnulaunakrafa Willam Fall, fyrrum bankastjóra Straums, en hann sækir rúmlega 600 milljónir króna í þrotabúið. Í tilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir um mánuði síðan tilkynnti William að hann myndi gefa peninginn til góðgerðarmála á Íslandi, verði krafan samþykkt. Annar kröfuhafi, NóNó ehf., hefur einnig lögsótt þrotabú bankans og krefst 26 milljón króna. Fyrirtækið heitir Reykjavík Economics í dag og er í eigu Magnúsar Árna Skúlasonar sem fór fyrir Indefence-hópnum. Stefna félagsins gegn Straumi er vegna gjaldeyrisviðskipta eftir þjóðnýtingu stóru bankanna. Þá mótaði félagið auk Straums greiðslumiðlunarkerfi til þess að bjóða viðskiptavinum upp á miðlun gjaldeyris til Íslands með skjótari hætti heldur en ef viðskiptin færu í gegnum Seðlabankann. Sjálfur sat Magnús í Seðlabankaráði Íslands en sagði af sér eftir ásakanir um að hann hafi ætlað að greiða fyrir aflandsviðskiptum með gjaldeyri og vinna þannig gegn gjaldeyrishöftunum. Aðrar kröfur í Straum, og teknar eru fyrir í héraðsdómi í dag, eru af hálfu skilanefndar Landsbankans og svo Michaels Bellamy, sem var starfsmaður Straums. Helsti eigandi Straums var Samson global holdings sem aftur var í eigu Björgólfsfeðganna, en Björgólfur Thor Björgólfsson var stjórnarformaður bankans.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira