Skoðun

Ríkisstjórn biðstöðunnar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Það er ekki sérlega mikið í tísku að líta björtum augum til framtíðarinnar, allt að því að maður sé litinn hornauga ef talað er um þau tækifæri sem gefast á erfiðum tímum. Þau eru nefnilega mýmörg ef rétt er á málum haldið. En að fortíð skal hyggja er framtíð skal byggja.

Við Sjálfstæðismenn endurmetum nú fortíðina á opinskáan og heiðarlegan hátt. Það er nauðsynlegt svo hægt verði að skapa traust bæði innan og utan flokksins. Ég held að flestir átti sig á hvað betur mátti fara. Má nefna þröngt eignarhald á bönkum við einkavæðingu, lítið gegnsæi, áhættusækni, eftirliti var ábótavant og fleira. Þetta er margrætt og verður áfram.

Færri hafa viljað ræða um þær pólitísku ákvarðanir fortíðarinnar sem þó hafa leitt til þess að viðspyrna okkar Íslendinga er meiri en ella hefði verið. Þegar hinn Svein Harald Oygard tók við embætti seðlabankastjóra þá tiltók hann þrjá þætti er gæfu tilefni til bjartsýni. Í fyrsta lagi sagði hann ríkissjóð hafa verið rekinn með afgangi fyrir hrun bankanna. Þetta er ekki sjálfgefið. Við skulum ekki gleyma því að það voru pólitískar ákvarðanir sem leiddu til þess að farið var að greiða niður skuldir og lán ríkissjóðs. Voru þó ýmsir góðkunningjar sem vildu allt til þess gera að setja fjármagnið í ýmis „góð" mál í stað niðurgreiðslu skulda.

Í annan stað nefndi hinn nýi seðlabankastjóri vel menntað fólk. Ég tek undir það. Við settum okkur t.a.m. það nauðsynlega takmark að fjölga nemendum á háskólastigi og efla rannsóknir. Það tókst. Samspil einkarekstrar og opinbers rekstrar í skólamálum var aukið án þess að ógna jöfnum tækifærum til náms. Það stuðlaði að aukinni skólasókn og fleiri valmöguleikum á háskólastigi en áður höfðu sést. Einnig voru settar fram auknar kröfur um gæði náms og rannsókna en slíkar kröfur efla samkeppnishæfni okkar á alþjóðavísu. Þetta voru pólitískar ákvarðanir teknar undir forystu Sjálfstæðismanna.

Í þriðja lagi gat hinn norski seðlabankastjóri Íslands þess að hér væri vinnusamt og duglegt fólk. Það er rétt. Hér er fólk sem hefur stuðlað að uppbyggingu öflugra atvinnuvega hvort sem er á sviði rannsókna, nýsköpunar, iðnaðar, menningar, landbúnaðar, sjávarútvegs eða ferðaþjónustu. Hér er fólk sem vill horfa fram á atvinnutækifæri og að unnið sé að því að verja þau störf sem fyrir eru í landinu. Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið, hverjum sem um er að kenna, þá þarf nú að taka ákvarðanir, réttar ákvarðanir. Þess vegna höfum við ekki efni á hræðslu við að taka á nauðsynlegri hagræðingu í ríkisrekstri og ákvörðunum um skynsamlega nýtingu orkuauðlinda. Svo ekki sé minnst á peningamálastefnuna.

Í ljósi þróunar síðustu vikna er raunveruleg hætta á að hinar vinnufúsu hendur standi frammi fyrir þeim bráðavanda að hér er biðstofuríkisstjórn. Að hér er komin vinstri ríkisstjórn sem verður bara á gamalkunnugu rauðu ljósi. Á mæltu máli þýðir það stöðnun.

Höfundur er varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

 




Skoðun

Sjá meira


×