Viðskiptaráð: Mikill skortur á samráði við skattafrumvarpsgerð 16. desember 2009 10:00
Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um skattafrumvarp ríkisstjórnarinnar ásamt því að mæta fyrir efnahags- og skattanefnd Alþingis. VÍ gagnrýnir vinnubrögð Alþingis, en mikill skortur hefur verið á samráði við hagsmunaaðila. Einnig er fyrirætlun ríkisstjórnarinnar um að keyra frumvarpið í gegn á þeim litla tíma sem er til áramóta gangrýnisverð. Í dag eru einungis níu virkir dagar eftir af árinu. Fjallað er um málið á vefsíðu Viðskiptaráðs en þar má nálgast umsögn ráðsins í heild. Á vefsíðunni segir að Viðskiptaráð hefur fylgst náið með aðgerðum stjórnvalda á sviði ríkisfjármála á undanförnum vikum og mánuðum, sem margar hverjar eru afar misráðnar. Bæði fjárlagafrumvarp næsta árs og nýleg frumvörp á sviði skattlagningar bera með sér ríka niðurskurðarfælni af hálfu stjórnvalda - á tímum þegar lítið svigrúm er til slíkra viðhorfa. Í aðgerðum sínum taka stjórnvöld ekki tillit til þess að veruleg aðlögun hefur þegar átt sér stað hjá heimilum og fyrirtækjum landsins. Þetta sést best á umtalsverðum samdrætti í einkaneyslu, meira en 10 þúsund töpuðum störfum, hruni í fjárfestingu einkaaðila, fjöldagjaldþrotum fyrirtækja og lækkandi launum á almennum vinnumarkaði. Um leið og þessum hópi er ætlað að bera auknar byrðar þá stefnir ríkið eingöngu að því að taka lítil skref í átt til niðurskurðar og aðhalds, þrátt fyrir verulega þenslu í útgjöldum þess undanfarin ár. Breytingar á skattkerfinu eru ekki líklegar til að heimta tekjur af skilvirkni og munum við því standa uppi í verri stöðu en ella, þar sem tekjurnar sem vænst var eftir munu ekki skila sér í ríkissjóð.
Mest lesið Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Lögreglustjórinn: Segir pabbabrandara, elskar krimmasögur og segir húmor vanmetinn Atvinnulíf Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Viðskipti innlent Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Sjá meira