Flaga upp um rúm 180 prósent á viku 31. janúar 2008 10:17 Unnið við smíði svefnmælingatækis hjá Flögu. Mynd/E.Ól.
Gengi bréfa í svefnrannsóknafyrirtækinu Flögu hélt áfram að hækka í dag, nú um rúm sjö prósent við upphaf viðskipta. Aðeins tvö félög sem skráð eru í Kauphöllina hafa hækkað á árinu. Gengi bréfa fyrirtækisins hefur legið í láginni upp á síðkastið, verið í um 55 aurum á hlut. Venjulega eru afar litlar hreyfingar með bréf þess og þarf lítið til að hreyfa við genginu hvort heldur er upp eða niður. Flaga hefur hækkað hratt á einni viku, um rúm 180 prósent. Greiningardeild Kaupþings sagði í gær að forstjóri og fjármálastjóri Flögu hafi keypt stóra hluti í félaginu. Gengi bréfa í Flögu og Nýherja eru þau einu sem hafa hækkað í Kauphöllinni frá áramótum. Nýherji hefur hækkað um 2,5 prósent og Flaga um rúm 82 prósent. Að öðru leyti hefur gengi allra fyrirtækja í Kauphöllinni ýmist lækkað eða staðið í stað í dag. Gengi bréfa í SPRON hefur fallið um rétt rúm fimm prósent, Existu um 3,7 prósent, í Glitni um 2,7 prósent og FL Group um 2,5. Úrvalsvísitalan hefur á sama tíma fallið um tvö prósent og stendur vísitalan í 5.328 stigum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Sjá meira