Viðskipti erlent

Christie Hefner hættir sem forstjóri Playboy

Christie Hefner hefur ákveðið að hætta sem forstjóri og stjórnarformaður Playboy-veldisins en þessum störfum hefur hún gengt undanfarin 20 ár. Ákvörðun hennar tekur gildi 31. janúar á næsta ári.

Hlutabréf í Playboy tók stökk upp á við er þetta fréttist en Playboy hefur ekki farið varhluta af fjármálakreppunni. Þannig tapaði Palyboy rúmlega um 600 milljónum kr. á þriðja ársfjórðungi ársins.

Í yfirlýsingu segir Christie, dóttir Hugh Hefner stofnanda Playboy, að þar sem land hennar hafi fengið nýja forystu telji hún tímabært að breyta sínu eigin lífi.

Christie var ákafur stuðningsmaður Barak Obama og ætlar sér að reyna fyrir sér í stjórnmálum á næsta ári.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×