Geir segir stjórnvöld vera að skoða aðgerðir FME í Bretlandi 16. desember 2008 09:38
Geir Haarde forsætisráðherra segir í samtali við BBC að íslensk stjórnvöld séu að skoða hvort aðgerðir breska fjármálaeftirlitins hafi leitt til þess að Singer & Friedlander (S&F) banki Kaupþings hafi fallið. Fall S&F leiddi svo aftur til þess að Kaupþing á Íslandi féll einnig. Geir segir að íslensk stjórnvöld séu að íhuga málsókn gegn breska ríkinu. "Ég tel að við verðum að skoða sérstaklega allt í kringum Kaupþing," segir Geir. Viðtalið við Geir á BBC fjallar að mestu um fyrirhugaða málsókn Íslands gegn Bretlandi. Ein spurningin er hvort FME í Bretlandi hafi vitað af neyðarláni Seðlabankans til Kaupþings örskömmu áður en bresk stjórnvöld tóku S&F í sína vörslu. Geir segir að hann viti ekki hvaða skilaboð fóru á milli fjármálaeftirlita landanna hvað þetta varðar. Fram kemur á BBC að ef íslensk stjórnvöld eða kröfuhafar Kaupþings myndu vinna málsókn gegn breska ríkinu telja lögfræðingar að skaðabæturnar sem dæmdar yrðu væru af stærðargráðunni nokkrir milljarðar punda.
Mest lesið Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Viðskipti innlent Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Viðskipti innlent Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Viðskipti innlent Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Viðskipti innlent Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Viðskipti innlent Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lætur mál gegn OpenAI niður falla Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Bein útsending: Fjórða flugferð Starship Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Dagar Workplace eru taldir Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sjá meira