Beckham hrósar Capello Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. október 2008 18:04 David Beckham og Fabio Capello. Nordic Photos / Getty Images
David Beckham hefur hrósað Fabio Capello fyrir þær breytingar sem hann hefur keyrt í gegn hjá enska landsliðinu sem hefur unnið fyrstu fjóra leiki sína í undankeppni HM 2010. „Það er langt síðan að það var jafnmikið sjálfstraust í enska landsliðinu," sagði Beckham sem var lengi fyrirliði enska landsliðsins og lék á sínum tíma undir stjórn Capello hjá Real Madrid. „Ég nýt leikjanna í undankeppninni og mér hefur verið heiður sýndur að fá að vera hluti af þessu liði sem hefur átt svo góðu gengi að fagna. Því er einfaldlega að þakka að liðið er að spila góða knattspyrnu." England vann í gær 3-1 sigur á Hvít-Rússum en sigurinn þýddi að enska landsliðið hefur aldrei byrjað betur í undankeppni stórmóts. Beckham hefur tekið þátt í öllum fjórum leikjunum sem varamaður. „Þjálfarinn veit hvernig á að vinna leiki, ekki bara á Wembley heldur líka á útivelli. Hann er mjög spenntur fyrir heimsmeistarakeppninni og það er frábært að vera hluti af hópnum." „Ég vann með honum í Madríd í eitt ár. Ég veit því hvernig knattspyrnustjóra og persónu hann hefur að geyma. Ég veit hvers hann krefst af leikmönnum og hann nær því besta úr þeim." Beckham lék í gær sinn 107. landsleik á ferlinum. Ef hann nær einum til viðbótar mun hann jafna leikjafjölda Sir Bobby Moore sem á flesta leiki að baki fyrir enska landsliðið að markvörðum frátöldum.
Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Sjá meira