Samkomulag um björgunarhringinn í burðarliðnum 25. september 2008 19:18 Wall Street. MYND/AFP
Demókratar og repúblíkanar á Bandaríkjaþingi hafa náð samkomulagi um milljarða frumvarp til að bjarga bágstöddum fjármálafyrirtækjum í efnahagskreppunni í Bandaríkjunum. Talið er að það fari í gegnum þingið á næstu dögum. Ekki er vitað hvað felst í sakomulaginu en frumvarpið hefur setið fast í þinginu í nokkra daga. Talið er að nýtt frumvarp tryggi eftirlit með sextíu þúsund milljarða króna sjóði sem fé verður veitt úr til að kaupa undirmálslán bandarískra fjármálafyrirtækja sem eru í kröggum. Einnig verði sett þak laun stjórnenda þeirra fyrirtækja sem þurfi hjálp. Þetta var ekki í upphaflega frumvarpinu. Repúblíkanar sem og demókratar höfðu gagnrýnt frumvarpið en um leið þrýsti Bush Bandaríkjaforseti á að það yrði samþykkt þegar hann ávarpaði þjóð sína í sjónvarpi í gær. John McCain, forsetaefni repúblíkana, og Barack Obama, forsetaframbjóðandi demókrata, eiga fund með Bush Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu klukkan átta í kvöld þar sem málið verður til umræðu. McCain hefur frestað kosningabaráttu sinni vegna stöðu mála. Hann vill fresta fyrirhuguðum kappræðum við Obama í Mississippi annað kvöld. Enn er óvíst hvort af kappræðunum verður.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Samstarf Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira