Erlendir fjárfestar með 60 milljarða frosna í desember 1. desember 2008 12:13
Erlendir fjárfestar munu frjósa inni með rúmlega 60 milljarðar kr. nú í desember í kjölfar hinna nýju gjaldeyrisreglna Seðlabankans. Talsvert framboð er í farvatninu af nýjum ríkisbréfum á næstu dögum. Tilgangur þess er fyrst og fremst að mæta eftirspurn vegna gjalddaga ríkisbréfa í desember sem eru að miklu leyti í erlendri eigu. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að ríkisbréfaflokkurinn RIKB 08 1212 sé á gjalddaga 12. desember en við það losni um það bil 100 milljarðar kr. að meðtöldum verðbréfalánum til aðalmiðlara. Telur greiningin að allt að tveimur þriðju hlutum þessara bréfa séu í eigu erlendra fjárfesta. Þessir fjármunir eru nú fastir hér á landi eftir setningu reglna Seðlabankans um gjaldeyrishöft á föstudag. Erlendir fjárfestar munu því væntanlega verða fyrirferðamiklir meðal kaupenda í útboðum á nýjum ríkisbréfum.. Seðlabankinn tilkynnti nýverið um útboð í ríkisbréfaflokknum RIKB 10 0317 sem fara á fram á miðvikudag. Ekkert hámarksviðmið er á magni í útboðinu, en hið svokallaða hollenska fyrirkomulag er viðhaft. Það hefur í för með sér að lægsta verð (og þar með hæsta ávöxtunarkrafa) sem samþykkt er ræður verði og ávöxtunarkröfu til allra kaupenda.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira