Afskriftir vegna undirmálslána eru orðnar 45.000 milljarðar kr. 15. september 2008 16:42
Afskriftir fjármálastofnanna vegna undirmálslána og tengdum eignum eru orðnar ríflega 500 milljarðar dollara eða sem nemur 45.000 milljarða kr. Þetta kemur fram í umfjöllun greiningar Kaupþings í Hálf fimm fréttum þeirra í dag. Þar segir ennfremur að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gaf fyrr í ár út skýrslu þar sem þeir bjuggust við að þegar uppi væri staðið hafi afskriftir náð 1.000 milljörðum Bandaríkjadala eða sem svarar til ríflega 90.000 milljarða kr. Samfara afskriftunum hefur lausafé horfið úr kerfinu. Einn mælikvarði á slíkt sé til dæmis að aðeins um 350 milljarðar dollara hafi safnast í nýtt hlutafé samanborið við 500 milljarða dollara afskriftir. Eigið fé hafi þannig þurrkast út fyrir 150 milljarða dala eða rúmlega 14.000 milljarða kr. "Að teknu tilliti til gírunarhlutfalls eigin fjár í fjármálageiranum, sem er raunar mjög mismunandi eftir löndum og mörkuðum, eru heildaráhrifin mun meiri," segir í Hálf fimm fréttunum. "Sé t.d. miðað við hlutfallið hjá íslensku bönkunum (ca. 17,5 sem er raunar frekar lágt m.v. aðra banka í Evrópu) má áætla út frá þessum forsendum að um 2.500 milljarðar dollara hafi horfið úr fjármálakerfum heimsins. Tekið skal þó fram að þessar forsendur eru afar lauslega áætlaðar." Talan 2.500 milljarðar dollara er um 225.000 milljarðar kr.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira