Viðskipti erlent

Standard & Poor´s lækkar matið á Íbúðalánasjóði

Matsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því í gær að það hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum í BBB úr A+.

Jafnframt var lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt lækkuð í BBB úr A-.

Þá voru langtímaeinkunnir teknar af athugunarlista með neikvæðum vísbendingum. Lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt var lækkuð í A-3 úr A-2 og einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum A-1 var lækkuð í A-3.

Horfur á lánshæfismat Íbúðalánasjóðs eru neikvæðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×